Færsluflokkur: Evrópumál

Útrásarfylkingin

Hvernig getur innlimun í ESB verið aðalvandamál 98% íslensku þjóðarinnar. Er ekki greiðsluþrotið eða skammtíma efnahagshrun í Kjölfar ESS, innrásar og græðgi óforsjálni með tilheyrandi atvinnuleysi og tekjumissi almennings  það sem þarf að eiga alla athygli.

Borgarnesræðan ásamt fleirum táknrænum tilburðum gerir hún fylkingunni stætt að vera í ríkisstjórn meðan leyndir þættir hrunsins eru rannsakaðir?

Í stöðunni í dag er þetta ekki spurning um fjölda stjórnarþingmanna heldur um gæði meirihluta á þingi.  Allt er betra en tækifærissinnaðar fylkingar í dag.

Í framtíðinni er upptaka sterkasta gjaldmiðilsins Dollars ásamt áherslum á nánari tengslum við NAFTA og Grænland, Færeyjar og Noreg í myndinni ásamt ASÍU og AFRÍKU.  Ennfremur er endurskoðun á ESS nauðsynleg sem fyrst: samanber að við höfum nánast tekið upp allt regluverk Beaurok-ratanna í óþökk við meirihluta þjóðarinnar. Auðlindir Íslands í sjó og á landi svo sem orka og sjávarfang eiga að vera sameign þjóðarinnar en ekki í einkaeign [nema þá í litlu mæli svo sem hlunnindi heimajarðar].


mbl.is ESB aðeins átylla fyrir stjórnarslitum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er það svart

Í dag birtu Samtök Atvinnulífsins einnig könnun - sú var um mat ráðamanna í atvinnulífinu á stöðu fyrirtækja. Í byrjun desember tölu 99% þeirra að aðstæður í efnahagslífinu væru slæmar. Enginn taldi aðstæðurnar góðar.

Ráðningaráform á næstu sex mánuðum eru jafnframt í sögulegu lágmarki. Aðeins tæplega 8% fyrirtækjanna gera ráð fyrir að fjölga hjá sér starfsfólki á næstu sex mánuðum, en þau fyrirtæki eru einkum í sjávarútvegi. Tæplega fjögur af hverjum tíu fyrirtækjum telja að starfsmannafjöldinn verði óbreyttur en röskur helmingur telur að fækka þurfi starfsfólki hjá fyrirtækjunum.

Þjóðin er venjulega ekki nógu svartsýn svo allt bendir til að útlitið sé mun svartara ef eitthvað er. 

Vonandi verður ekki skuldum einkaaðila ekki velt yfir á sársaklausa þjóðina. Svartsýni getur nefnilega verið í samræmi við óréttlæti. 


mbl.is Íslendingar aldrei verið svartsýnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erlendir ofurauðhringir?

Endurskoðunarfyrirtækið Price Waterhouse Coopers rannsakaði Kaupþing, Deloitte Landsbankann ogErnst&YoungGlitni. Rannsóknin á Glitni var upphaflega á höndum KPMG sem sagði sig frá rannsókninni í desember.

Fjórir stærstu með margvíslega þjónustustarfsemi fyrir alþjóðlega auðhringi sem og önnur fyrirtæki.

 


mbl.is Rannsaka fjárfestingar sjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattar á innistæður skila slatta.

Síðast þegar ég gáði voru vextir allra innlánsreikninga [líka gjaldeyris], að undanskildum ofurupphæðum eða verðbólgutryggðum bundum í 3 ár, neikvæðir það er höfuðstólinn rýrnaði. Samt sem áður eru 10% skattar af skertri verbólgutryggingu höfuðstóls [innistæðunnar]. Það má því segja að Íslenskir Bankar og skatturinn græði á því þegar þegar Íslendingar reyna að spara. Borga inn á öll verðtryggðlán er besta sparnaðarleiðinn í augnblikinu.

Almenningur þarf að eiga sína eigin ríkisstjórn og banka í framtíðinni það er augljóst. Það augljóst að þær íslensku kennitölur sem eiga sameiginlega hagsmuni með ESB-auðhringnum eru mjög fáar og alls ekki treystandi fyrir hagsmunum 98% þjóðarinnar.

Gleymum ekki að ESS kynslóðin sú sem var alin upp við regluverkið er varla andlega eða líkamlega mótuð til að ganga undir þjóðarsátt [sérstakur Íslenskur undirbúningur er nauðsynlegur]


mbl.is Vextir 22% af skattfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir  sagði:

Mér finnst að ef á annað borð er verið að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu í landinu og kalla alla að kjörborðinu séu mjög sterk efnisleg rök fyrir því að þá fari fram þingkosningar samhliða. Það hefur verið kallað eftir því að umboðið sé endurnýjað og ef við erum að sækja umboð til þjóðarinnar til að fara í svona viðræður eru einhvernveginn sterk rök sem hnígja að því að það sé haft víðtækara," segir hún í samtali við mbl.is. 

 Mér finnst að Sjálfstæðisflokkurinn eiga að sleppa hendinni af Samfo og leyfa henni að spreyta sig í kosningum.

ESS með regluverki sínu er var tekið upp hér í dvergefnahagsríkinu Ísland og hrunið er alveg  nógu mikil kynning á því hvernig er að tengjast ESB náið. Sá flokkur, sem getur komið fram með sannanlega áætlun sem eykur hagvöxt og eignamyndun heimilanna íslensku almennt, til langframa, er verðurgur til að vera í forsvari fyrir þjóðina til framtíðar. 


mbl.is Alþingiskosningar samhliða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleðlegt nýtt ár með þökkum fyrir það gamla

Nú er fjallað um það hvort Íslendingar eigi að stíga skrefið til fulls og gerast aðildarríki Evrópusambandsins. Þegar við tókumst síðast á um slík mál, um og upp úr 1990, var margt öðruvísi umhorfs í heiminum. Niðurstaðan varð sú að stíga það skref að gerast aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Ég tel að það hafi gefist vel

 

Mörgum öðrum stéttum [þolendunum] finnst regluverkið óþolandi og vill halda í áræði og forfeðra ættarhyggju og snúa bökum saman. Foræðishyggju og ráðstjórn þar sem  fáir einstaklingar fá að njóta sín beri að forðast.  Mér finnst því það hafa gefist vel, til að sýna fram á ekki beri að halda áfram sömu braut [fyrir ESS], heldur bakka þangað þegar raunveruleg eignarmyndun átti sér stað hjá heimilunum og hagvöxtur þeirra blómstraði, og byrja svo aftur á íslenskum forsemdum, í ljósi breyttar heimsmyndar og netsins.

Ræðan endurspeglaði mörg góð sjónarmið og ásættanleg sjónarmið líka en flokkurinn er stór. Geir hefur staðið sig eins og hetja í sambúðinni og þá er ég ekki að tala um hans einkalíf sem varðar ekkert um.

Blokkvinir og allir hinir: Gleðilegt nýtt ár með þökkum fyrir það gamla.


mbl.is Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andlegt ofbeldi

Andlegt ofbeldi og kúgun er síst betri þó friðsamleg sýnist. Kasti þeir steinum sem búa í glerhúsi.

Hverjir eru verðugir fulltrúar Íslands er spurning.  Mótmælendur 98%, þjóðarinnar þessi sem borgar skattanna og skuldirnar með aleigu sinni, eru vissulega fulltrúar þjóðarinnar þó sumir þeirra séu  kannski ofbeldishneigðir að eðlisfari og sumir þeirra sitji enn heima.  Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi. Mikill er ábyrgð stjórnvalda  og þeirra sem eiga að kunna að hemja skap sitt.  Á tímum  þegar þörf er á þjóðarsamstöðu um sérhagsmunamál íslensku þjóðarinnar. Hátekjur almennt þannig að allir geti sparað. Eitt smáfyrirtæki hámark á einstakling. Heimilishagvöxt í stað Hagvaxtar ESB auðhringa.

Er algjört ábyrgðarleysi af mönnum í æðstu stöðum að gefa yfirlýsingar um hverjir séu fulltrúar þjóðarinnar eða ekki, því 98% eru búinn af nóg af allri skiptingu þjóðarinnar síðust 20 ár. Saman stöndum vér sundruð föllum vér. Íslendingar voru búnir að vera ein þjóð í meir en 1000 ár og gekk almenning hér síst verr en þeim í þjóðabandalögunum. 

 

Á efnahagsstríðstímum þarf þjóðin á því að halda að á hana sé hlustað. Það dettur engum í hug að þeir sem vissu ekki betur séu sekir um ábyrgðarleysi.   Hinsvegar treystir enginn margsvikin kjósandi sama stjórnmálamanni aftur og nóg er skynsömu fólki í báðum stjórnarflokkum sem er betur fallið til stjórnar í harðæri.  Fólk sem persónugerir sig of mikið á erfileikatímum gerir lítið úr vaxandi þjáningum almennings: 98% þjóðarinnar. Menn viðurkenna mistök með því að treysta öðrum. Sá sem treystir öðrum og hefur ekkert að fela honum er treystandi.  Góðæri er ekki mælikvarði á góða leiðtoga það hefur komið upp á daginn. Frú Vigdísi virtist auðvelt að þekja þjóð sína og fór persóna hennar vaxandi með hverjum deginum sem leið. Allir verða að þekkja sinn vitjunartíma. 


mbl.is Mótmælin áttu að vera friðsamleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðsamleg veðsetning Íslensku þjóðarinnar?

Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, sagðist efast um að þeir sem mótmæltu fyrir utan Hótel Borg væru fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Hún sagðist gera skýran greinarmun á þessum mótmælum og friðsamlegum fjöldamótmælum á Austurvelli undanfarnar vikur.

Illt er að egna óbilgjarnan Íslending.  Við hverju má búast eftir 6 mánuði? 40.000 manna atvinnuleysi?  Gyðingum var sagt að fara í bað á friðsamlegan hátt. Langlundargeðið er misjafnt. Níðingsverk má fremja á friðsamlegan hátt en þeir sem verða fyrir þeim skynja þau öðruvísi.

Ef efast líka um hverjir séu fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Þeir sem stjórna friðsamlaga til að jafna birgðar eða tekjur allra á öllum tímum jafnt.  Eða hinir sem stjórna friðsamlega í samræmi við hagvaxtavísitölur erlendra auðhringa. 


mbl.is Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dollar sterkur Króna veik

 Heimska eða greind?

Af hverju Íslendingum voru sett þau skilyrði að þiggja lán IMF. Það er í samræmi við að orðum þeirra sem eru í forsvari fyrir fjármálum Íslendinga er ekki treyst. Það er í samræmi við að hér ríki spilling og óráðsía í kerfinu.  IMF er fyrst og fremst eftirlitsaðili með hagsmuni lánadrottna [erlendra auðhringa] í huga.

Ísland komst í greiðsluþrot, ekki beint vegna gífurlegra fjármuna bundinna í auðlinum heldur frekar að mínu mati fyrir ótrúverðuga fjármála pólitík og sennilega fyrir að  svíkja lit: það er að segja nýta sér smugur á regluverki: framkvæma það sem gengur ekki upp af skynsemisástæðum  og stangast á við  meinta heiðarlega viðskipta samkeppni. Þó það sé ekki hægt að koma lögum yfir Íslenska aðila af tæknilegum ástæðum þá eru til aðrar aðferðir  svo sem útskúfun þeirra sem telja sér misboðið.  Íslenska aðferðin sem stunduð hefur verið hér heima af harðdrægni " no fair deal"gengur greinilega ekki upp í samfélagi virðulegra erlendra lánadrottna [auðhringa].  

 

Það gildir almennt í heiminum að það skiptir máli hvor Jón eða séra Jón á í hlut. Það er hægt að svína á markaðinum en þeir sem hafa ekki efni á því enda í samræmi einir í heiminum: það kallast útskúfun þeirra sem svínað var á. Skel hæfir kjafti.  

 

Þessi svokallaða útrás er ekki dæmi um snilld einstaklinga heldur ótrúlega vanþekkingu og skilningsleysi, vanskeytingu á raunverulegum mörkuðum eða með öðrum orðum lágreind og harðdrægni: hortugheit.  þetta er forheimskt lið eiginhagsmunaseggja sem drottna hér á Íslandi eins og er að sanna sig, dag frá degi, betur og betur.  Svona lið er í menntakerfum erlendis kæft í fæðingu með því að forgangsraða með tilliti til greindar. Í Frakklandi til dæmis dugir að innan við 10% greindustu hlutar þjóðarinnar „funkeri“ , komist í efstu valda stöður.  

 

Í mörgum ríkjum eru sterkgreindir aðilar að störfum í ráðuneytum þannig að greind stjórnmálamanna verður ekki til trafala. "Yes minister".

ESB auðhringarnir maka svo núna krókinn og telja sig geta fengið allar auðlindirnar á brunaútsölu. Þetta er alltaf spurning hjá þeim sem hafa til þess greind að græða þegar upp er staðið.


mbl.is Gengisvísitala krónu hækkaði um 80,24% á árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB aðlögun

Ljósir punktar í stöðunni fyrir ESB-sinna og ESB fjárfesta[erlenda auðhringa].  Almennar ráðstöfunar tekjur minnka um 33% ef það nægir portúgölskum almenning og írskum þá ætti það ekki að vera oflítið fyrir íslenskan. Skrifræðið og regluverk ESS festir sig í sessi. Fákeppni og keðjuhringafjársugur og þeirra erlendu alþjóða endurskoðendur ásamt verðbréfahöll halda áfram að mata krókinn. Samningstaða ESB beaurok-rata aldrei betri þjóðina þyrstir í stöðug láglauna lífskjör eftir reynsluna að af ESS og hinum  íslensku óstjórnar bauroK-rötum.  Landsframleiðsla ESB vex og tekjur ESB sem heildar aukast. Veitir hinni gömlu geldu Evrópu auðstétt ekki af því, í ljósi þeirra ofurlauna sem henni sæmir í sagnfræðilegum skilningi. Þjóðríkið Ísland var barn síns tíma sem byggði á raunverulegum jafnræðissjónarmiðum á kostnað hinna táknrænu.  Þegar upp er staðið þá skiptir ekki máli þó almenningur í ESB hafi litið upp til þess á Íslandi, hinir ofurríku hagsmunir þeirra sem meira mega sín innan ESB eru þeirra stéttar sem hefur ríkt lengst. Millistéttin íslenska miðað við réttlátan vinnutíma innan ESB var nú hingað til ofborguð og sú efri ofurfjölmenn sem er nú ekki gott fordæmi fyrir samsvarandi stéttir innan ESB. Ísland eru nú bara, svæði á hjara veraldar, með nokkrum hræðum talandi tungu sem borgar sig ekki að túlka. Innlimun er ekki spurning Íslendingar þurfa bara að eiga frumkvæðið: kemur betur út síðar í sagnfræðilegum skilningi. Þrælar með ólund hafa oftast reynst afkasta minni.


mbl.is Ýmislegt breytist um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband