Færsluflokkur: Spil og leikir

Dómarar taki niður sólgleraugun

Nú er seinasti séns að að vinna sér almenna virðingu hjá dómurum "þjóðarinnar".  Almanna vilji augljós og siðferði gott, allir inn í málum og dómarar í  góðri þjálfum. Þetta er ekki tími óþarfa málatilbúnaðar þar sem fljótgreidd afgreiðsla er það sem skiptir máli.   Þar sem að mikið af málum er í farvatninu og snerta oftast sömu kennitölur er þjóðhagsamlegast að taka af handahófi stærstu glæpina fyrir og dæma þyngstu hugsanlegu refsingu en gefa sekum, fjölda smámála í bónus: það er að fella þau niður eða geyma þangað til um hægist.

 Salómon var spakur á sínum tíma.
mbl.is Ákært á ný í Baugsmálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagfræði

Allir Hagfræðingar sem stíga í vitið gátu fyrir mörgum mánuðum gert sér grein fyrir því að bankarnir voru of stórir til að geta þjónað hagmunum Íslensku þjóðarinnar.  Þeir sem högnuðust og báru ábyrgð á gerðum þeirra vissu alltaf hvernig gæti farið.

Gott er að vera vitur eftir á. Af hverju drógu Bankarnir ekki saman seglin fyrir 15 mánuðum síðan þegar brunútsala var fyrirsjáanleg [selja eignir og draga úr starfsemi] ef þeir voru fullvissir að þeim yrði ekki refsað fyrir það síðar? 

það hvað raunverulegar eigur þeirra voru litlar er í samræmi við það sem fæst fyrir þær á Brunaútsölu. Sem er glæpsamlega lítið þegar um bankastofnanir er að ræða að mínu mati.

Þjóðinn á ekki að borg fyrir sukk annarra,  hvorki í einkalífi eða rekstri. 

Í raun er langt síðan fyrirtækin urðu of stór fyrir bankanna sbr. Fákeppnina sem leiddi af ESS. 


mbl.is Seðlabankinn varaður við í júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld framkvæmi vilja 99% þjóðarinnar.

Það er alveg ljóst að því lengur sem sekum er ekki refsað, er verið að magna hér upp dómstól götunnar. Með hverju deginum sem líður versnar útlitið, sjálfsafneitun sérfræðinga sem sannanlega stíga ekki í vitið, enda sérfróðir í ofrurgróðablekkingartímabili er ekki ábætandi.

Í mars, apríl verður hér landlægt atvinnuleysi kannski 25.000- 30.000- manns. 1 atvinnulaus veldur kannski um 8 öðrum góðum einstaklingum á skertum launum auknum birgðum. Þjóðin sem betur fer er ekki sjálfselsk að upplagi.

Ef smámótmæli eru ólíðandi í augum ofurlaunastéttarinnar, við hverju má þá búst við í Mars?

Stjórnmálamenn sem taka þátt í þessari yfirhylmingu eru brennimerktir um aldur og ævi og eiga sér ekki viðreisnar von eftir næstu kosningar. Minnið eflist í Kreppu er staðreynd. Þó það sljóvgist á neyslutímum.


mbl.is Mótmæli halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Velsæmismörk eru ákveðin af 99% þjóðarinnar

Nokkur orð um traust.

Það er auðvelt að segja ósatt. Það að segja satt er hinsvegar erfit.  Mafíur og önnur glæpasamtöku leggja mikið upp úr því að meðlimir þeirra segi satt, til þess að þeim sé treystandi.   Líkur sækir líkan heim. Menn verða að vera hafnir yfir allan vafa. Hagsmunir fárra verða að víkja fyrir heildarhagsmunum þjóðarinnar. Þeim stóra meirihluta 99%? sem mesta virðingu hafa nú á tímum.  Í upphafi skyldi endinn skoða. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.


mbl.is Tryggvi hættur í Landsbankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keðjuhringarnir of stórir fyrir bankanna

Poul Thomsen "Hann lagði áherslu á að vandamálin sem Ísland stæði frammi fyrir væru stór, og úr þeim mætti ekki gera lítið. „Fólk má ekki gleyma því að hér varð til neyðarástand í efnahagslegu tilliti,“ sagði Thomsen og vitnaði til atburða í byrjun október sem leiddu til hruns Glitnis, Kaupþings og Landsbankans."

Keðjuhringarnir voru of stórir fyrir bankanna. Markaðsetning "The Con artists" gekk upp. Eftirlitisaðilar blindaðar af gliti gullkálfsins.

"Hann sagði enn fremur að Ísland ætti vel að geta staðið við sínar skuldbindingar sem tilkomnar eru vegna bankahrunsins. Það er að borga til baka lánin sem Ísland hefur ákveðið að taka til þess að bregðast við. En til þess að það gengi vel þyrfti að vinna markvisst samkvæmt raunhæfum áætlunum."

Lánin sem ákveðið hefur verið að þjóðin vilji borga.  Úrslit næstu kosninga munu staðfesta að þetta er ekki með öllu rétt.

Ásmundur Stefánsson mun hafa réttlætt samsetningu bréfa í svo sögðum öruggum sjóðum með því að heimildir hefðu verið rúmmar. [Glæpsamlega rúmmar segi ég þá]

Flestir ábyrgir fjárfestingaraðlar sem vit hafa á þessum málum kaupa ekki þessa skýringu. Þeir mátu umrædd bréf ekki áhættunnar virði til langframa.  Í dag er þetta ekki ekki spurning hvort rétt sé.  

Hvort Ásmundur hafi hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi í skoðunum sínum er ekki vafamál í ljósi afstöðu hans til "the con artists".   Virtir sérfræðingar síðustu ára eru sennilega ekki það sem þjóðin þarf á að halda í ljósi reynslu þeirra: sér í lagi á "óhefðbundinni" bankastarfsemi.  Þjóðin er nú að uppkera afrakstur meintra fræðinga.  Verkið lofaði meistarann.  Þjóðinn þarf að fá sérfræðinga í heilbrigðum viðskiptum til starfa; sennilegast eru það þeir sem ekki var hampað í markaðsetningu "the con artists" 


mbl.is Áætlunin gengur vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Holy Iceland

Afhverju fá íslenskir collegar hans ekki hliðstæða meðferð. Of skyldir þeim sem sitja um stjórnvöllinn? 99 % er búið að segja sig úr skyldleika við þess menn.


mbl.is Madoff í stofufangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sterkan gjaldmiðil strax.

"Þrátt fyrir mikla hækkun gengis krónunnar undanfarna daga er hún enn lág sögulega séð. Að meðaltali hefur evran kostað 91 krónu frá floti krónunnar í mars 2001. Evran hélst undir 100 krónum alveg frá floti þar til í byrjun mars í ár."

Fjármagnskerfi Íslendinga er búið að brenna í bækur alþjóða fjármálaspekulanta  sem  spillt. Hér vantar sambærilega lagaramma og hjá öðrum vestrænum þjóðum þar fjálshyggjan ríkir.

Þeir sem ekki eru dæmdir hér eru dæmdir hjá öðrum þjóðum þar sem í þeirra augum er sektin sönnuð.   Íslendingar eru ekki einir í heiminum.  Út með alla úr fjámálakerfinu sem sekir eru á mælikvarða þeirra þjóða sem við viljum bera okkur saman við og þeirra vitorðsmanna og verndara. 

Efnahagslegt öryggi og orðspor þjóðarinnar hefur borið óbætanlegann skaða vegna hátternis og framferðis ýmisa kennitalna sem brugðust trausti þjóðarinnar; með glansmyndum  og einokun á fjölmiðlum m.a.


mbl.is Krónan byrjuð að veikjast á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skömmin er Leyndin!

"Þannig yrði það afdráttarlaust viðurkennt að leynd gagnvart skattyfirvöldum eigi ekki rétt á sér og því verði unnt að tryggja betur jafnræði, hlutlægni og samræmi í skattlagningu."

Raunverulegur hagnaður í þágu fjöldans er virðingarverður  og þarf ekki að fela. 


mbl.is Leynd gagnvart skatti á ekki rétt á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESS íþyngjandi

 "Leiðtogar OPEC-ríkjanna samþykktu í dag að skerða framleiðslu um 2,2 milljónir tunna á dag."

Íslendingar umhverfisvæn orkuframleiðsluþjóð. ESS er það ekki farið að vera íþyngjandi fullréttis efnahag Íslendinga.

Heimurinn segir ef í lok næst árs fari hlutirnir að ganga upp.


mbl.is Olíuverð ekki lægra í 4½ ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dollar strax

Orðspor gömlu krónunnar er ónýtt næstu öldina. 
mbl.is Seðlabankinn breytir vöxtum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband