Bankastjórar bera enga ábyrgð.

Það er löngu sannað að íslenskir bankastjórar bera enga ábyrgð sama hvert eignaformið á bönkunum er.  Það á að bjóða stöðurnar út: til að tryggja sem mestan hag innlánseiganda.  Það til nóg af fólki sem getur farið eftir ströngum reglum.


mbl.is Forstjóri Landsbankans lækkar í launum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sögð hingað til sterkustu ríki ESB.

Markmiðið með björgunaraðgerðunum er að koma fjármálafyrirtækjum í viðkomandi löndum til hjálpar í fjármálakreppunni. Þessi ríki eru Þýskaland, Bretland, Spánn og Ítalía.

ESB er á flæðiskeri statt. Ekki er mikið þangað að sækja. Guð hjálpar þeim sem hjápar sér sjálfur. Þjóðverjar er greinilega ekki í góðum málum. Skyldi þetta vera upphafið að enda ESB? Reyndist hagræðingi í S-ESB og A-ESB síðustu tuttugu ára ekki nógu ávöxtunarsöm.?


mbl.is ESB samþykkir björgunaraðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESS er upphafið

Í skjóli samningsins um evrópskt efnahagssvæði, var Ísland gangrýnilaust  opnað fyrir erlendum fjárfestum [m.a. KMPG,  Deloitte Touche Tohmatsu.]. Íslenskir fjárfestar fluttu svo mikið af íslenskum fjármun í vafasamar áhættu fjárfestingar innan ESB [Sér í lagi austurpartinum]. Fákeppni var hampað og ýmsum aðilum á íslenskum markaði var gert kleyft að gleypa þá minni í sig.  Ofurstærð sumra fyrirtækja [fjármálasamsteypa, keðjuhringa, Kauphallar Íslands] varð of stór biti fyrir Dvergefnahagssvæðið Ísland. Sem í framhaldi gerði kröfu til stærri einkabanka,sem væru í samræmi við ofurgræðgina. Öllum meðulum var beitt m.a. annars ólöglegum sem öðrum eru að koma upp úr leyndinni. Ofurgróðatímabilið eftir  á séð  má líta á sem fórnunnar kostnaði á stærra altari : innlimunarinnar í ESB. Kostnaður sem er strax farinn að skilja sér og við sem þjóð, að fáum jafnari undanskildum,  mun halda áfram að finna fyrir næstu árin í skertum lífskjörum.

Er von að sjóði upp úr. Samkvæmt vestrænum gildum leyfist fjölskyldum að vernda heimili sín.


mbl.is Óttast að uppúr sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Debetkort eru ekki leiðin úr kreppunni

Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að ekki væri hægt að fara yfir um á Debet korti og það færi ein aðalkosturinn um fram kreditkort. Hérna í eldgamla daga voru innstæðulausar ávísanir jafngildar skjalafalsi. Einu sinni var siðferðið þannig að sá sem gaf sig út fyrir að vera ábyrgur átti ekki freista þeirra óábyrgu: FIT gjöld. Nú virðist líka vera löglegt gefa út skuldabréf með veð í skálduðu verðmætamati á fasteignum eða rekstri ef kaupandi og seljandi eru sammála um það. Er það oft réttlætt sem viðskiptavild þeirra í millum. Það getur hver er séð [nema ofurgreint dómskerfið?] að ef jafnræðisreglu væri gætt, þá get við öll haft það náðugt og værum ekki í vandræðum við að losa okkur úr þeim meinta hrikalega skuldvanda sem við þjóðin erum í.  Lögleg fordæmi bera að virða og fara eftir, það getur sérhver lögfróður íslendingur staðfest. Lög eru í takt við tímann og taka hraðfara  breytingum. Með lögum skal Landi byggja.


Allir jafnir fyrir lögum!!!

Ég nenni ekki einu sinni að kynna mér málið. Allir Íslendingar eru jafnir fyrir lögum. Ólög eyða Landinu. Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá.


mbl.is Eftirlaunafrumvarpið samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. desember 2008

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.10.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 55320

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband