Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.1.2009 | 03:05
Hvað er maðurinn að fara?
Þó er rétt að árétta að skylda forsetans hefur í vaxandi mæli verið að veita íslenskum hagsmunum, vísindum og listum brautargengi í veröldinni, leggja lið á mörgum sviðum. Það var þáttur í kjöri mínu, umboðinu sem þjóðin veitti mér í sérhverjum kosningum
Starfsskyldur embættis Forseta Íslends eru vel skilgreindar samkvæmt stjórnarskrá og er þessi ekki þar á meðal. Ég tel að skyldum hans hafi vísvitandi verið stillt í hóf til að forsetinn gerðist ekki of gírugur til launa.
Hinsvegar skiptir þessi játning mestu máli.
Á liðnum árum hafa margir gert mistök, stór og smá, og það er áríðandi að hver og einn leiti þeirra og viðurkenni, dragi af þeim lærdóma. Það hef ég reynt að gera, meta heiðarlega hvernig ég gekk of langt í málflutningi og liðsinni við starfsemi íslenskra banka og fjármálafyrirtækja erlendis, fundið hve áríðandi er að gaumgæfa betur gagnrýnisraddir og grasrótina, að efinn verður ætíð að vera með í för, einkum þegar hætt er við að kappið skyggi á forsjána; mikilvægt að muna þann gamla sannleik að hin raunverulegu verðmæti eru jafnan traustari en pappírsgróði.
Ég tel að Forseti Íslands hver sem er hafi ekki sjálfdæmi þegar hann gengur of langt. Það er líka gert ráð fyrir því að slíkt geti gerst í sömu starfsskrá.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.12.2008 | 21:57
Gleðlegt nýtt ár með þökkum fyrir það gamla
Nú er fjallað um það hvort Íslendingar eigi að stíga skrefið til fulls og gerast aðildarríki Evrópusambandsins. Þegar við tókumst síðast á um slík mál, um og upp úr 1990, var margt öðruvísi umhorfs í heiminum. Niðurstaðan varð sú að stíga það skref að gerast aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Ég tel að það hafi gefist vel
Mörgum öðrum stéttum [þolendunum] finnst regluverkið óþolandi og vill halda í áræði og forfeðra ættarhyggju og snúa bökum saman. Foræðishyggju og ráðstjórn þar sem fáir einstaklingar fá að njóta sín beri að forðast. Mér finnst því það hafa gefist vel, til að sýna fram á ekki beri að halda áfram sömu braut [fyrir ESS], heldur bakka þangað þegar raunveruleg eignarmyndun átti sér stað hjá heimilunum og hagvöxtur þeirra blómstraði, og byrja svo aftur á íslenskum forsemdum, í ljósi breyttar heimsmyndar og netsins.
Ræðan endurspeglaði mörg góð sjónarmið og ásættanleg sjónarmið líka en flokkurinn er stór. Geir hefur staðið sig eins og hetja í sambúðinni og þá er ég ekki að tala um hans einkalíf sem varðar ekkert um.
Blokkvinir og allir hinir: Gleðilegt nýtt ár með þökkum fyrir það gamla.
Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2008 | 20:00
Andlegt ofbeldi
Andlegt ofbeldi og kúgun er síst betri þó friðsamleg sýnist. Kasti þeir steinum sem búa í glerhúsi.
Hverjir eru verðugir fulltrúar Íslands er spurning. Mótmælendur 98%, þjóðarinnar þessi sem borgar skattanna og skuldirnar með aleigu sinni, eru vissulega fulltrúar þjóðarinnar þó sumir þeirra séu kannski ofbeldishneigðir að eðlisfari og sumir þeirra sitji enn heima. Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi. Mikill er ábyrgð stjórnvalda og þeirra sem eiga að kunna að hemja skap sitt. Á tímum þegar þörf er á þjóðarsamstöðu um sérhagsmunamál íslensku þjóðarinnar. Hátekjur almennt þannig að allir geti sparað. Eitt smáfyrirtæki hámark á einstakling. Heimilishagvöxt í stað Hagvaxtar ESB auðhringa.
Er algjört ábyrgðarleysi af mönnum í æðstu stöðum að gefa yfirlýsingar um hverjir séu fulltrúar þjóðarinnar eða ekki, því 98% eru búinn af nóg af allri skiptingu þjóðarinnar síðust 20 ár. Saman stöndum vér sundruð föllum vér. Íslendingar voru búnir að vera ein þjóð í meir en 1000 ár og gekk almenning hér síst verr en þeim í þjóðabandalögunum.
Á efnahagsstríðstímum þarf þjóðin á því að halda að á hana sé hlustað. Það dettur engum í hug að þeir sem vissu ekki betur séu sekir um ábyrgðarleysi. Hinsvegar treystir enginn margsvikin kjósandi sama stjórnmálamanni aftur og nóg er skynsömu fólki í báðum stjórnarflokkum sem er betur fallið til stjórnar í harðæri. Fólk sem persónugerir sig of mikið á erfileikatímum gerir lítið úr vaxandi þjáningum almennings: 98% þjóðarinnar. Menn viðurkenna mistök með því að treysta öðrum. Sá sem treystir öðrum og hefur ekkert að fela honum er treystandi. Góðæri er ekki mælikvarði á góða leiðtoga það hefur komið upp á daginn. Frú Vigdísi virtist auðvelt að þekja þjóð sína og fór persóna hennar vaxandi með hverjum deginum sem leið. Allir verða að þekkja sinn vitjunartíma.
Mótmælin áttu að vera friðsamleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 17:10
Friðsamleg veðsetning Íslensku þjóðarinnar?
Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, sagðist efast um að þeir sem mótmæltu fyrir utan Hótel Borg væru fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Hún sagðist gera skýran greinarmun á þessum mótmælum og friðsamlegum fjöldamótmælum á Austurvelli undanfarnar vikur.
Illt er að egna óbilgjarnan Íslending. Við hverju má búast eftir 6 mánuði? 40.000 manna atvinnuleysi? Gyðingum var sagt að fara í bað á friðsamlegan hátt. Langlundargeðið er misjafnt. Níðingsverk má fremja á friðsamlegan hátt en þeir sem verða fyrir þeim skynja þau öðruvísi.
Ef efast líka um hverjir séu fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Þeir sem stjórna friðsamlaga til að jafna birgðar eða tekjur allra á öllum tímum jafnt. Eða hinir sem stjórna friðsamlega í samræmi við hagvaxtavísitölur erlendra auðhringa.
Kryddsíld lokið vegna skemmdarverka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.12.2008 | 13:07
Dollar sterkur Króna veik
Heimska eða greind?
Af hverju Íslendingum voru sett þau skilyrði að þiggja lán IMF. Það er í samræmi við að orðum þeirra sem eru í forsvari fyrir fjármálum Íslendinga er ekki treyst. Það er í samræmi við að hér ríki spilling og óráðsía í kerfinu. IMF er fyrst og fremst eftirlitsaðili með hagsmuni lánadrottna [erlendra auðhringa] í huga.
Ísland komst í greiðsluþrot, ekki beint vegna gífurlegra fjármuna bundinna í auðlinum heldur frekar að mínu mati fyrir ótrúverðuga fjármála pólitík og sennilega fyrir að svíkja lit: það er að segja nýta sér smugur á regluverki: framkvæma það sem gengur ekki upp af skynsemisástæðum og stangast á við meinta heiðarlega viðskipta samkeppni. Þó það sé ekki hægt að koma lögum yfir Íslenska aðila af tæknilegum ástæðum þá eru til aðrar aðferðir svo sem útskúfun þeirra sem telja sér misboðið. Íslenska aðferðin sem stunduð hefur verið hér heima af harðdrægni " no fair deal"gengur greinilega ekki upp í samfélagi virðulegra erlendra lánadrottna [auðhringa].
Það gildir almennt í heiminum að það skiptir máli hvor Jón eða séra Jón á í hlut. Það er hægt að svína á markaðinum en þeir sem hafa ekki efni á því enda í samræmi einir í heiminum: það kallast útskúfun þeirra sem svínað var á. Skel hæfir kjafti.
Þessi svokallaða útrás er ekki dæmi um snilld einstaklinga heldur ótrúlega vanþekkingu og skilningsleysi, vanskeytingu á raunverulegum mörkuðum eða með öðrum orðum lágreind og harðdrægni: hortugheit. þetta er forheimskt lið eiginhagsmunaseggja sem drottna hér á Íslandi eins og er að sanna sig, dag frá degi, betur og betur. Svona lið er í menntakerfum erlendis kæft í fæðingu með því að forgangsraða með tilliti til greindar. Í Frakklandi til dæmis dugir að innan við 10% greindustu hlutar þjóðarinnar funkeri , komist í efstu valda stöður.
Í mörgum ríkjum eru sterkgreindir aðilar að störfum í ráðuneytum þannig að greind stjórnmálamanna verður ekki til trafala. "Yes minister".
ESB auðhringarnir maka svo núna krókinn og telja sig geta fengið allar auðlindirnar á brunaútsölu. Þetta er alltaf spurning hjá þeim sem hafa til þess greind að græða þegar upp er staðið.
Gengisvísitala krónu hækkaði um 80,24% á árinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.12.2008 | 02:00
98% þjóðarinnar
98% þjóðarinnar sem erum hvorki táknræn eða á ofurlaunum verðum að gefa núverandi stjórnmála- og dómsmála stétt frí næstu 8 árin. Stofna bráðabirgða þjóðarflokk til að hreinsa til og taka upp gamlar reglur og setja nýjar sem tryggir, okkar allra, velferð til framtíðar. Hagur heimilanna á Íslandi er ekki sá sami og alþjóða auðhringa eða þeirra eftirlitsstofnanna, upplýsingastofnanna eða endurskoðenda. Okkar hagur er að tryggja okkur almenn há laun, skilvirkt kerfi þar sem leyndin á ekki heima utan veggja heimilisins. Allir skulu jafnir að lögum, sem eiga að endurspegla bestu vestrænu siðferðisgildi á öllum tímum. Þegar gefið var frelsi til trúbragðaiðkunar gleymist að taka boðorðin upp í lögin. Því miður fyrir okkur sem erum ekki táknræn.
Annmarkar á skipun dómara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2008 | 19:22
ESB aðlögun
Ljósir punktar í stöðunni fyrir ESB-sinna og ESB fjárfesta[erlenda auðhringa]. Almennar ráðstöfunar tekjur minnka um 33% ef það nægir portúgölskum almenning og írskum þá ætti það ekki að vera oflítið fyrir íslenskan. Skrifræðið og regluverk ESS festir sig í sessi. Fákeppni og keðjuhringafjársugur og þeirra erlendu alþjóða endurskoðendur ásamt verðbréfahöll halda áfram að mata krókinn. Samningstaða ESB beaurok-rata aldrei betri þjóðina þyrstir í stöðug láglauna lífskjör eftir reynsluna að af ESS og hinum íslensku óstjórnar bauroK-rötum. Landsframleiðsla ESB vex og tekjur ESB sem heildar aukast. Veitir hinni gömlu geldu Evrópu auðstétt ekki af því, í ljósi þeirra ofurlauna sem henni sæmir í sagnfræðilegum skilningi. Þjóðríkið Ísland var barn síns tíma sem byggði á raunverulegum jafnræðissjónarmiðum á kostnað hinna táknrænu. Þegar upp er staðið þá skiptir ekki máli þó almenningur í ESB hafi litið upp til þess á Íslandi, hinir ofurríku hagsmunir þeirra sem meira mega sín innan ESB eru þeirra stéttar sem hefur ríkt lengst. Millistéttin íslenska miðað við réttlátan vinnutíma innan ESB var nú hingað til ofborguð og sú efri ofurfjölmenn sem er nú ekki gott fordæmi fyrir samsvarandi stéttir innan ESB. Ísland eru nú bara, svæði á hjara veraldar, með nokkrum hræðum talandi tungu sem borgar sig ekki að túlka. Innlimun er ekki spurning Íslendingar þurfa bara að eiga frumkvæðið: kemur betur út síðar í sagnfræðilegum skilningi. Þrælar með ólund hafa oftast reynst afkasta minni.
Ýmislegt breytist um áramót | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.12.2008 | 16:24
Efnahagsstríð eða heimskreppa
Baráttan um auðlindirnar.
Alltaf þrengir meir og meir að gömlu Evrópu nýlenduveldunum, hvers íbúar viðhalda sér mest nú til dags með fólki úr Litlu Asíu, og ekki trúi ég því að gömlu nýlendurnar sakni þeirra mikið.
Landsframleiðsla ESB verður aldrei meiri en þær auðlindir [orka og hráefni] sem beauroK-ratarnir ráða yfir það vita ESB fjárfestarnir [erlendu fjármagnsauðhringarnir] betur öðrum fremur. Sjálf er ESB að auðlinda þroti komin og háð Rússum um orku frá austri og vestri, samanber ítök Rússa í fyrrum Olíu og gas fyrirtækjum Spánar.
Ameríka [USA] og ASÍA [Kína] með auðlinda ítökum í Afríku og Litlu Asíu er markaður sem ESB Rússlands blokkin fer hallloka fyrir.
Núna þegar efnahagstríðið [heimskreppan] er að stíga sín fyrstu spor fyrir alvöru, er tími fyrir Íslendinga að endurheimta fullræði sitt og sjálfræði á öllu sviðum. Endurskoðun eða uppsögn á ESS, skrifræðinu og regluverkinu sem þröngvað hefur verið upp á þjóðin síðustu 20 ár, er það sem þarf til. Ísland eitt og sér er dvergefnahagssvæði sem þrífst ekki á innkomu erlendra fjármagnsauðhringa [fjárfesta], fákeppni, innlendum keðjuauðhringum, auðlindum í einkaeign, verðbréfahöll, braski með krónubréf, opnu landamærum, ofurlaunum og samsöfnun valds [eignarhalds] á fárra hendur.
Á Íslandi dafna lítil [á alþjóðamælikvarða] einkafyrirtæki, rekin á arðbærum eiginlegum grunni, það er reksturinn borgar sig sjálfur til langframa. Hæstu þjóðartekjur í heimi og lítill íbúafjöldi leyfa almenn hátekjulaun sem skila sér í neyslu gæðavara og gæðaþjónustu á öllum sviðum: hagvöxtur almennings.
Öll leynd er skömm því skýrar leikreglur á öllum mörkuðum er nauðsynlegar til að tryggja heilbrigða samkeppni. T.d. um opnunartíma of vinnutíma hámörk í samræmi við þann markað sem við á. Eins eiga fyrirtæki í eiginlegum rekstri að láta af lána viðskiptum og eiga þau alfarið að vera hjá velreknum fjármálastofnunum. Öll verð á vöru og þjónustu eiga að vera uppi á borðum og miðast við afhendingu í húsi framleiðenda. Lánskostnaður og sendingakostnaður sé allaf sundurskilinn á kosta kaupenda eða þess er neytir. Það má líkja frjálsri heiðarlegri samkeppni við handbolta eða fótbolta þeir hæfustu eru inn á og allir geta metið leikin þar sem engin leynd hvílir yfir skýrum reglum að flestra mati sanngjörnum. Þar sem samkeppni verður ekki komið við vegna smæðar þá getur verið betra að hafa eitt þjónustu fyrirtæki en fá [Fákeppni þegjandi samkomulag greindra aðila um skiptingu markaðarins].
Sterkasti gjaldmiðilinn Dollar tryggir aðgang að öllum heimsmörkuðum, mesta valið og minnstu áhættuna, almenn greind margra Íslendinga tryggir hámarks gróða. Samfélag þar sem almennar hátekjur ríkja eiga að beina spjótum sínum að minni en fleiri hátekjumörkuðum sem finnast meðal allra þjóða.
Íslenska fullvalda þjóðríkið geymist aldrei meðan það stendur upp úr og skarar fram úr. Íslendingur er hver sá sem virðir almennar reglur og siði á land og þjóðar á hverjum tíma. Nokkuð sem ég tel flesta almenna íbúa heimsins sækjast eftir en það eru takmörk [auðlindir] fyrir öllu.
Flytja út bændur til Afríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.1.2009 kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 20:17
Sókn og vörn
Í niðurlagi greinar sinar segir Jón Ásgeir að það hafi aldrei verið brýnna að hann beitti sér af fullu afli í því að styrkja stöðu fyrirtækja sinna og verja atvinnu þeirra sem þar starfa og þau verðmæti sem í þeim felist. Ég hyggst, segir hann, taka þátt í því starfi að endurreisa íslenskt atvinnulíf, ég hyggst taka þátt í því af fullri einurð og jafnvel svolitlu af þeirri harðdrægni sem ég hef tamið mér í viðskiptum, segir Jón Ásgeir Jóhannesson; þannig axli hann sína ábyrgð
Það mun rétt að Jón Ásgeir ber ekki ein sök á hruninu upp á sitt einsdæmi. Enda starfar hann í umboði eigenda sinna.
Að hans ábyrgð felist í því að hann hafi lagt mesta áherslu á sókn en minni á vörn efast enginn um.
Fyrirtæki hans eða keðjuhringa fjármálsamsteypan. Hverju sækist hann eftir? Í heilbrigðri markaðssamkeppni eru allir viðskiptavinir og "fair deal" er það sem gildir hvort, lykilinn að því sé harðdrægni þegar um lítil einkafyrirtæki er að ræða læt ég ósagt. Sókn er það tilvísun í offjárfestingar og vörn þýðari það forsjálni sem einkennir stöðugan ábyrgan rekstur. 400.000 miljónirnar [svipað og Jöklabréfin]: skuldir á Íslandi eða eiginfé sem mismunur 1200.000 - 900.000 milljóna, hefur það ekki rýrnað talsvert frá því fyrir mitt á árinu. 400.000 milljónar af 1200.000 milljónum eru 33 1/3 % . Svipað og almenn skerðing á launum ótáknrænna launþega [almennings].
Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.7.2009 kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 19:17
Í alþjóðlegri kreppu
Heimsmarkaðsverð á gulli hefur hækkað undanfarið vegna ótta fjárfesta við verðbólgu. Hefur gullverð ekki verið hærra í tvo mánuði, en málmurinn hefur gjarnan verið álitinn örugg höfn fyrir fjárfesta í efnahagslegu fárviðri eins og nú geisar.
Í ljósi sögunnar þó hamstrar almenningur, í flestum löndum, heims gull þegar hann á von á löngu efnhagsstríði eða kreppu. Svo fjárfestar [löngu búnar að losa við bréf í smartvöru búðum sem og í lágvöru] hugsa sér gott til glóðarinnar þegar líður á heimskreppuna.
Gull hækkar í verði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Júlíus Björnsson
Tenglar
EU bálkaða lagasafnið
- EU STJÓRNARSKRÁRDRÖGIN Efnisyfirlit
- SAMNINGURINN UM EVRÓPSKU SAMEININGUNA Grein 1 til og með grein 55
- SAMNINGURINN UM STARFSEMI EVRÓPSKU SAMEININGARINNAR I Grein 1 til og með grein 173
- SAMNINGURINN UM STARFSEMI EVRÓPSKU SAMEININGARINNAR II Grein 174 til og með grein 358
- FRUMSKJÖL 1-6 Viðaukar við Samninganna I
- FRUMSKJÖL 7-9 Viðaukar við Samninganna II
- FRUMSKJÖL 10-37 Viðaukar við Samninganna III
- Fylgiskjöl 1-2 Fylgiskjöl við Samninganna
- TILSKIPUN 94/19/ES EVRÓPSKA ÞINGSINS OG RÁÐSINS þann 30. maí 1994 Til að koma í veg fyrir hrun allra Banka á sama markaði
- Umsækjenda lönd um aðild að Evrópsku Sameiningunni. Lánarfyrirgreiðslur, eftirspurn eftir krónubréfum í samræmi við acquis.
Mínir tenglar
- Alþjóðleg samantekt um lögleg jafngreiðslu/íbúðalán Mortgage, Hypothec, Annuitet, Negam, jafgreiðsla, veðlán
- Irving Fisher skýrir verðtryggingu best og aðra vísa:Indexes Allir sem vilja skilja grunn fjármála skilja meistarann
- Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands Tók gildi 17. júní 1944.
- Leiðrétt verðtryggingar vísitala. Sjá og flokkinn Íbúðarvísitala
- Falið Forsetavald Stjórnmálamenn fari eftir stjórnarskrá.
- Í upphafi skyldi ábyrgur endinn skoða Hrun húsbréfakerfisins var öllun ábyrgu ljóst 2002
- IMF eða AGS AGS sjá Publication Country Report
- Meinhornið Mannvins rök til að hlusta á.
Góðir punktar
- Valdar greinar um afturhvarf til miðalda á Íslandi Grunnur til að skilja hrunið
- Páll Vilhjálmsson Höfundur er blaðamaður. Ekki-Baugsmiðill
- G. Tómas Gunnarsson Bjórá 49
- Kastljós Skoðar ræturnar
- Schweizerische Volkspartei SVP Freipass für alle? NEIN zur Personenfreizügigkeit!
- United Kingdom Independence Party Freedom to choose Bretar vilja snúa baki við ESB
- Reform Party : Enduruppbygging til reisnar. Bendir á vandamál hliðstæð Íslenskum
ESB
- Treaty of Lisbon Council of the European Union
- Ísland síðustu 20 ár. Áhrif ES regluverksins? Menningararfleið Sameinaðar [meginlands] Evróu
- Seðlabanki Íslands 330.000 íbúar hafa þeir efni á þessu?
- Kauphöll Íslands Sjá og : omxnordicexchange.com/
- Iceland and the IMF Þessir með hlutlausa sjónarhornið AGS
- Traktat Om En Forfatning For Europa Treaty on a Constitution for Europe
- Danmarks Riges Grundlov Grunnreglur Danska ríkisins: Stjórnarskrá
- Stjórnarskrá Frakklands CONSTITUTION DE LA CINQUIEME REPUBLIQUE
- European Commission Evrópska Umboðið þeirra opinbera hlið
Málmyndarfræði
- Aelius Donatus rómverskur málmyndarsagnari á 4.öld Einn af heimildar mönnun Ólafs Þórðasonar hvítaskálds.
- Priscianus Caesariensis (fl. 500 AD) Latnesku málmyndarsagnari Annar af heimildarmönnum Ólafs hvítaskálds
- Ólafur Þórðarson hvítaskáld og rúnafræðingur(um 1210 1259) Samdi Grundvöll Málfræðinnar og Málskrúðsfræði
- Luca Pacioli 1446/7 -1517 Tvíhliða bókhald og grunninnrætingar forsendur hæfra ráðmanna.
- Quadrivum: fullnægand innrætting yfirstéttar manna lámarkskröfur til yfirstéttanna sem vilja hafa áhrif á jafningja
- Trivium: fyrir þjónanna. Nauðsynleg innræting fyrir meiriháttar menntun.
Nýjustu færslur
- Ríkisábyrgð
- Syndir feðranna koma niður á annarra manna börnum
- Mammon er Guðinn?
- EES: Samningur um Evrópskt Efnahagsvæði
- Íbúðafasteignaveðsverðvísir er það ekki málið?
- Íslenska glæpahúsnæðilánakerfið III!
- Íslenska glæpahúsnæðilánakerfið II!
- Íslenska glæpahúsnæðilánakerfið!
- Aldur og falið vald
- Sníða sér stak eftir vexti og hámarka virðisauka?
Bloggvinir
- tilveran-i-esb
- vild
- kristinnsig
- ea
- siggith
- einarsmaeli
- vilhjalmurarnason
- reykur
- baravel
- hannesgi
- hlf
- hallarut
- gudbjornj
- jonsullenberger
- huldumenn
- kristjan9
- jon-o-vilhjalmsson
- sigsaem
- zumann
- inhauth
- alla
- baldvinj
- ragnar73
- vala
- noosus
- halldorjonsson
- hreinn23
- gudjul
- vidhorf
- huxa
- thorsteinnhelgi
- krisjons
- bjarnimax
- gudmunduroli
- isleifur
- hvirfilbylur
- sv11
- baldher
- jonmagnusson
- gagnrynandi
- krist
- maggij
- idda
- morgunblogg
- rynir
- runirokk
- summi
- fullvalda
- predikarinn
- einarbb
- nr123minskodun
- valdimarjohannesson
- amadeus
- diesel
- sibba
- holmdish
- gattin
- eeelle
- vefritid
- thjodarheidur
- minnhugur
- svarthamar
Færsluflokkar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- íbúðarvísitala
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendamarkaður
- Siðferði
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar