Færsluflokkur: Spaugilegt

Ákveðin mistök hafi verið gerð

"Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, sem var sjálfur handtekinn á þingpöllunum fyrir mótmæli á námsárum sínum í háskólanum, segir atburðina í dag rifja upp gamlar minningar þegar hann hafi haldið ræðu á þingpöllum meðan 250 aðrir nemendur héldu lögreglunni í skefjum."

Var þá lítið tilefni til óláta. Ástandið í þjóðmálum ekkert í líkingu við það núna.

"...en það hafi aðallega verið vegna þess hversu verkefnið var stórt.

Stórt verkefni kallar á klára heila, margir hafa boðið sig fram og margir eru lausu. Ekkert verkefni er of stórt ef rétt er á haldið.


mbl.is Mótmælendur eiga ekki að bíta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylkingin hefði komið í veg fyrir!!!

Dæmi um forgangsröðun:

"Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, lét bóka í ríkisstjórn fyrir skemmstu að Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabankans, starfaði ekki í umboði Samfylkingarinnar."

Er eitthvað fleira sem Samfó. hefur komið í veg fyrir?

USA synjaði Íslandi um lána fyrirgreiðslu semma í byrjun árs sem allir með eitthvað undir sér túlka sem vísbendingu að einkabanka-Kerfið væri komið í þrot. Að grafa undan efnahagslegum stöðuleika þjóðar er ekkert annað en hryðjuverk í sjálfum sér. Óðlileg undir og yfirboð á mörkuðum er dæmi um það.  Bretar voru sama sinnis og USA og fóru ekki leynt með það. ESB stóð svo öll saman gegn hagsmunum ýmissa Íslenskra kennitalna.

Í umboð hvers starfar settur iðnaðmálaráðherra öðrum fremur?

Er þetta kjarni málsins? Eða er þetta persónulegt einkamál aðila, sem hefur ekkert með stjórn landsins að gera?   Er þetta þetta til að skapa traust innanlands sem utan?

Dettur einhverjum í hug að Davíð Oddson sé undirsáti núverandi iðnaðarráðherra?


mbl.is Bókunin frá Össuri komin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baugur segir

Svo "sagði Björgvin, að eina leiðin sem hann teldi færa í framtíðinni væri að sækja um aðild að Evrópusambandinu og Myntbandalagi Evrópu."

"Hitt væri svokallaður hlutfallsvandi: fjármálafyrirtækin væru orðin hlutfallslega of stór fyrir gjaldmiðilinn og hagkerfið."

Þjóðinn er hagkerfið og umheimurinn hafnaði stærðinni og þau hafa minnkað mikið í kjölfarið.

Áframhaldandi sjálfstæði er best og upptaka dollars.

Hinsvegar má segja að innflutningsfyrirtæki sem flytja mikið inn frá ESB, nú þegar, telji Evru besta kostinn. (Sjá Borgarnes ræðan)

Bankastofnun þarf mikið eigiðfé til að hækka innlánsvexti mikið umfram það sem gildir á heimamarkaði. Í ljósi strangari alþjóðaviðmiða í framtíðinni um mat á eignum eru Íslensku fjármálafyrirtækin sennilega of lítil fyrir hagkerfi annarra landa. 

Sá sem lítið veit og lítið skilur: Telur lítið.


mbl.is Eina leiðin að sækja um ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bónus

Það er munur á Bónus og Bónus. Í ljós þeirra bakreikinga sem við eigum að borga. Hvað er ekki hægt að gera með lánafyrirgreiðlum? Adam var ekki lengi í Paradís.
mbl.is Ríflegir bónusar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smuga

Þar sem Forsetinn stakk upp á þessu sjálfur og til að verða við óskum hans. Gæti Forsetinn skilað sjálfur hluta þeirra til ríkisins. Það er ómögulegt að skilja einhvern útundan. Almenningur velur ekki kjararáð en greiðir kostnaðinn við það. Best væri að Leggja það niður. Og taka upp gamla háttinn. Gera þingið ábyrgt fyrir Laununum. Kjósendur sjá svo um að veita því aðhald.


mbl.is Lækka laun ráðamanna?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er vinur í raun?

Hver er ábyrgur fyrir skuldum þessarar keðju? Eða hverjir eru núverandi eigendur? Ef maður vildi nú óska þeim gleðilegra Jóla. Með þökkum fyrir reksturinn á árinu sem var að líða.  
mbl.is Uppsagnir hjá Húsasmiðjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lán í Jólagjöf

Þjóðin að drukna úr skuldum  við að borga skuldir fyrir ýmsar íslenskar  kennitölur. Skv. IMF mun næsta ár verða miklu greiðsluþyngra og kaupmáttur ekki aukast, ef traust skapast, fyrr en 2011.

Við erum búin að gefa barnabörnum okkar nóg af lánum. Til að lækka verðbólgu er best að draga úr neyslu og borga upp lán. Það er langt þangað til við förum að spara aftur. Minni áhyggjur er best Jólagjöfin sem við gefum hvort öðru í ár. Það geta allir skuldarar skilið.  Þeir sem miklu meira bera úr bítum þurfa ekki að skuldsetja sig. En hinir sem ekkert eiga ættu nú skilið Jólapakka frítt. Nú er um að gera að herða ólina.

 


mbl.is Hagkaup býður jólalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Interpol

Þetta eru alvarlegar ábendingar óháð því hvort þær eru réttar. Bankaleynd notuð til að hylja lögbrot? Nefndir að hilma yfir meintum glæpamönnum? Hinsvegar má búast við að ekki náist í viðkomandi einstaklinga [er höfðu ekki hag fjöldans í fyrirrúmi: ekki í anda frjálshyggju], ber svo ekki að hafa samband við Interpol. Eða hafa samvinnu við Leynuþjónustur annarra landa til að upplýsa hluti. Fjármagnsflutningar, Eiturlyjasala, Iðnaður, vopnasala, ... eru nú þeirra ær og kýr.   


mbl.is Notuðu peningamarkaðssjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagfræðing í Seðlabankann ?

Til eru misvitrir fræðingar sem segja: „ Hagfræðing í Seðlabankann“.  Þó allir viti að Seðlabankinn er einn helsti atvinnurekandi þeirrar ágætu stéttar hér á landi og þó nokkrir þar við störf.  Undir stjórn Bankastjórnarinnar, hvers formaður er Davíð Oddsson, lögfræðingur af gamla skólunum, en þá voru þeir, ef ekki enn, ein eftirsóttast stéttin í fjármálastofnunum landsins  í ljósi þeirra þekkingar sem felst í námi þeirra m.a. á viðskiptum. 


Enginn toppar forystuhæfileika hans hér á landi; hann talaði á breiðum grunni fyrir  hönd miklum meirihluta umbjóðenda sinna á hverjum tíma, enda málstaðurinn góður. Enda virtist sundruðum, tvísaga andstæðingum hans, þar af leiðandi, hann vera einráður.  Ekki er við Davíð að sakast þótt margir sjálfstæðir í hugsun eigi sér sameiginlega hagsmuni.  Sameinaðir stöndum vér en sundraðir föllum vér.


Staða og reynsla  Davíðs í forystu slíkrar stórfylkingar, af  viðskiptaskipta og fjármálalífi þjóðarinnar, í langan tíma, er þar af leiðandi í samræmi.


Þótt fólki finnist það kannski skrýtið þá er það ekki hæfileikinn að ráða hæft fólk sem skiptir öllu máli, heldur er það að getan til að gefa þeim sem síðar reynast vanhæfir frí, sem gerir yfirmenn verðmæta, því það er yfirleitt það sem tekur mest á.


Sama á við í viðskiptum almennt : losa sig við þá viðskipta aðila sem eru vanhæfir. Við rekum þá á sama tíma og við rekum fyrirtækið eða stofnunina sem á í hlut. Heldur sá er á veldur.
Á bankamáli getur það kallast að setja í þrot: Sbr. Glitnir.


Ekki hef ég heyrt núverandi hagfræðinga Seðlabankans kvarta yfir Davíð. Vitur [fræðingur] nærri getur, reyndur veit þó betur.


Að skynja og hlusta á fólkið sitt hverju sinni skilar jú betri árangri heldur en hitt.


Ég tók eftir því á heimasíðu Seðlabanka að Arnór hagfræðingur, yfirmaður hagfræðisviðs kallar eftir  hagfræðing til starfa, um þessar mundir.


Hagfræðing í Seðlabankann.  Hæfur maður í hverjum stað. Til að reka og ráða.

Bréfbera gæti vantað í Seðlabanka, en varla flugfreyjur og fiskifræðinga jafnvel þó þeir fiski fólk.

Háskólaprófessorar sjá svo um að reka stúdenta og stunda sín fræði.


Áfall

„Ef ég væri ekki í ríkisstjórn væri ég þar," sagði ráðherra. Ég spyr til hvers? Væru einhverjir að mótmæla núna ef ríkistjórnin væri önnur. Hrein stjórn sem setti hagsmuni Íslands ofar hagsmunum ESB væri betri til að leiða okkur í gegnum það sem við eigum fyrir höndum. Fagurt er talað og mörg eru  orðin. Lítum okkur nær. Eitt í dag og annað á morgun. Þáttskilin eru þau að ekki verður um fleiri lánafyrirgreiðlur að ræða fyrr en traust hefur skapast. Að hika er sama og tapa. Hvað um þá sem eru að mótmæla hugmyndafræði ESB og talsmönnum hennar? Fyrirmynd samstöðunar í ríkisstjórn.

Vekur svona tvíhyggja traust. Vandamálið er ekki hver stjórnar heldur hverju er stjórnað og hvernig. Mótmælendur hljóta að fagna því ef ráðherra sýndi samstöðu og mætti á staðinn. Það er nóg af ráðherraefnum sem geta leyst sagnfræðinginn af.


mbl.is Áfallastjórnuninni lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 54941

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband