Færsluflokkur: Lífstíll

Dollar strax!

 

Til fróðleiks: Íbúða veðlán til 30 ára fyrstu kaup: Citybank í Washburn Wisconsin Fastir vextir um 6%. Engin verðtrygging þar sem veðið er er tryggingin. Hærri lánshluttfall hefur tilheigingu til að lækka vexti:magnafsláttur.

Segjum dollar væri gjaldmiðill á Íslandi. Uppgangur á mörkuðum innflutningstekjur í dollurum aukast og útfluttnings tekjur í dollurum aukast. Afborgaranir af ibúðaláninu óbreyttar.

Nú niðursveifla innfluttningstekjur í dollurum minnka og útfluttningstekjur minnka. Afborganir af íbúðaláninu óbreyttar.

Margir fræðingar hafa geinilega þörf á því að fara aftur í barnaskóla.

Heimilið er friðhelgur markaður.

Dollar strax.

Stærsta markaðsvæðið. Mesta valið. Minnsta áhættan.

 Meira Frelsi: köllum við það á markaði.


Vestur er hefðin

Góð reynsla af viðskiptum við USA segir að dollarinn sé betri kostur. Sér í lagi þá harnar á dalnum í Evrópu. Annars allt betra en krónan og verðtryggingin sem henni fylgir.  


mbl.is Vilja tengja íslensku krónuna við þá norsku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er vinur í raun?

Hver er ábyrgur fyrir skuldum þessarar keðju? Eða hverjir eru núverandi eigendur? Ef maður vildi nú óska þeim gleðilegra Jóla. Með þökkum fyrir reksturinn á árinu sem var að líða.  
mbl.is Uppsagnir hjá Húsasmiðjunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lán í Jólagjöf

Þjóðin að drukna úr skuldum  við að borga skuldir fyrir ýmsar íslenskar  kennitölur. Skv. IMF mun næsta ár verða miklu greiðsluþyngra og kaupmáttur ekki aukast, ef traust skapast, fyrr en 2011.

Við erum búin að gefa barnabörnum okkar nóg af lánum. Til að lækka verðbólgu er best að draga úr neyslu og borga upp lán. Það er langt þangað til við förum að spara aftur. Minni áhyggjur er best Jólagjöfin sem við gefum hvort öðru í ár. Það geta allir skuldarar skilið.  Þeir sem miklu meira bera úr bítum þurfa ekki að skuldsetja sig. En hinir sem ekkert eiga ættu nú skilið Jólapakka frítt. Nú er um að gera að herða ólina.

 


mbl.is Hagkaup býður jólalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt byggist þetta á trausti

þessar áætlanir virðast allar byggjast á trausti þess að alþjóðabankerfið fái trú á hinu "nýja" Íslenska: sem byggir á íslenskri krónu. Alþjóðabankakerfið næstu áratugina mun ekki treysta gjaldmiðli sem stendur ekki undir kostnaði. það mun treysta raunverulegum eignum: gulli og öðurum náttúru auðlyndum. Brennt barn forðast eldinn. Uppsögn ESB og upptaka dalsins treystir tryggingar Íslands, það er auðlindirnar, þá upp er staðið. Þetta vita þeir sem fylgjast með alþjóða baráttunni um auðlindir: aflvakan sem er grunnur annara frjálsra markaða.  Huglægir markaðir byggjast og nærast á þeim raunverlegu: svo sem við þurfum að borða til að hugsa. Fasteigna verð allra fasteigna ekki bara íbúðahúsnæðis á að hríðfalla af því að áhvílandi veðlán eru verðbólgubundin. Um 15 þúsund manna atvinnuleysidraugur er ómumflýjanlegur svo og um 20% prósenta almenn launaskerðing og rekstrartekjuskerðing fyrirtækja vegna verðbólgu. Það verður ekki bæði sleppt og haldið. Hvað ef krónan stígur ekki [tiltrúin vex ekki: áhættumatið] og ástandið fer versnandi í heimalöndum erlendu verkamannanna? Lánsfé er alltaf til staðar ef það er áhættunarvirði. Dalinn strax.   


mbl.is Hið fullkomna fárviðri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann hefði betur sagt um það bil.

Að líta á skuldirnar er ekki rangt af ábyrgum lándrottnum í ljósi stöðunar í heiminum í dag. Skuldirnar eru ábyrgð lánadrottna  og þeir eru allir að herða ólina. Lánsfé er af skornum skammti.

Eignir undanfarið hafa farið hraðlækkandi og nú er það reksturinn sem er upp á borðum frekar en hverfandi eigiðfé. Hér gildir eins og á öðrum sviðum heilbrigðs frjálsmarkaðar að: Fyrst  koma fyrstir fá. Séð í augum Lánadrottna.

Það er munur á því að hafa fengið lánað[úm hvaða tíma er verið að tala um varla var allt lánað í einu] og að skulda. 430 milljarða skuld við Íslendinga eigiðfé á móti 300 milljarðar.  Miðað að við hvað mikið hefur farið í vaskinn á síðustu árum sér í lagi upp á síðkastið. Væri óeðlilegt að skilja ekki áhyggju íslenskra lánadrottna. Sem verða ekki bornir saman við Mr. Brown í innheimtuaðgerðum.

Ekki þori ég að fullyrða að einhver einn hafi kollvarpað efnahagslífinu á Íslandi. Svo ekki sé meira sagt. Enn oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Sbr. Lítið meint eigiðfé á móti skuldum. Endurskoðun er oftast byggð á mati þess er ekki hefur framkvæmt endurskoðun. Slíkt kostar of mikið og tekur of mikinn tíma. En er oftast gerð fullkomlega við gjaldþrotaskipti.


mbl.is Efast um að Davíð eigi við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rannveig Rist

Hún er skörungur sem er ekki lengi að taka ákvarðanir sem Iðnaðrráðarherra, menntun og reynsla í samræmi svo hefur hún löngu síðan sannað sjálfan sig. Jafnvel þó sé ekki sérfróð um lifnaðarhætti fiska. Ætli hún væri tilbúin að gegna stöðunni í hjáverkum næstu 24 mánuði.  Það er þörf á þeim hæfustu í framkvæmdastjórnina  hans Geira, sér í lægi í ljósi stöðunnar sem er nú enginn draumatími. Hún lætur heldur ekki snuða sig. Og hefur traust alþjóðaheimsins. Áður var þörf nú er nauðsyn.


mbl.is Í draumi sérhvers manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hagfræðing í Seðlabankann ?

Til eru misvitrir fræðingar sem segja: „ Hagfræðing í Seðlabankann“.  Þó allir viti að Seðlabankinn er einn helsti atvinnurekandi þeirrar ágætu stéttar hér á landi og þó nokkrir þar við störf.  Undir stjórn Bankastjórnarinnar, hvers formaður er Davíð Oddsson, lögfræðingur af gamla skólunum, en þá voru þeir, ef ekki enn, ein eftirsóttast stéttin í fjármálastofnunum landsins  í ljósi þeirra þekkingar sem felst í námi þeirra m.a. á viðskiptum. 


Enginn toppar forystuhæfileika hans hér á landi; hann talaði á breiðum grunni fyrir  hönd miklum meirihluta umbjóðenda sinna á hverjum tíma, enda málstaðurinn góður. Enda virtist sundruðum, tvísaga andstæðingum hans, þar af leiðandi, hann vera einráður.  Ekki er við Davíð að sakast þótt margir sjálfstæðir í hugsun eigi sér sameiginlega hagsmuni.  Sameinaðir stöndum vér en sundraðir föllum vér.


Staða og reynsla  Davíðs í forystu slíkrar stórfylkingar, af  viðskiptaskipta og fjármálalífi þjóðarinnar, í langan tíma, er þar af leiðandi í samræmi.


Þótt fólki finnist það kannski skrýtið þá er það ekki hæfileikinn að ráða hæft fólk sem skiptir öllu máli, heldur er það að getan til að gefa þeim sem síðar reynast vanhæfir frí, sem gerir yfirmenn verðmæta, því það er yfirleitt það sem tekur mest á.


Sama á við í viðskiptum almennt : losa sig við þá viðskipta aðila sem eru vanhæfir. Við rekum þá á sama tíma og við rekum fyrirtækið eða stofnunina sem á í hlut. Heldur sá er á veldur.
Á bankamáli getur það kallast að setja í þrot: Sbr. Glitnir.


Ekki hef ég heyrt núverandi hagfræðinga Seðlabankans kvarta yfir Davíð. Vitur [fræðingur] nærri getur, reyndur veit þó betur.


Að skynja og hlusta á fólkið sitt hverju sinni skilar jú betri árangri heldur en hitt.


Ég tók eftir því á heimasíðu Seðlabanka að Arnór hagfræðingur, yfirmaður hagfræðisviðs kallar eftir  hagfræðing til starfa, um þessar mundir.


Hagfræðing í Seðlabankann.  Hæfur maður í hverjum stað. Til að reka og ráða.

Bréfbera gæti vantað í Seðlabanka, en varla flugfreyjur og fiskifræðinga jafnvel þó þeir fiski fólk.

Háskólaprófessorar sjá svo um að reka stúdenta og stunda sín fræði.


Góður punktur: að hans mati?

Þjóðin stendur í mótmælum og vill vera upplýst. Traust byggir á upplýsingu. Hins vegar í ljósi stöðunar, sem nú er uppi, þá er öll leynd hverju nafni sem hún nefnist óviðeigandi. Þeir sem eru fylgjandi leyndinni og reyna vernda leyndina [með málþófi og útúrsnúningum] benda að sjálfsögðu á sig sjálfa.  Hvað hagnast þeir á leyndinni og hvað hafa þeir að fela.  Hvað varðar fyrirtækin sem eru nú flest komin óbeint í eigu lánadrottna [þjóðarinnar?] þá þjónar leyndin ekki þegar markaðurinn ákveður  hver eiga sér viðreisnar von. Sá heldur sem á veldur.

Þrír eru handahafar Forsetavaldins, sem að sjálfsögðu snýst um embættið, en ekki þann einstakling, sem þjónar því hverju sinni.  Nero og hans líkar hefðu kannski verið á annarri skoðun, enda bjuggu þeir við annarskonar valdræði. Sá heldur sem á veldur.


mbl.is Björn: Fjölmiðlar marklausir við núverandi aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengur á eigiðféð

Hver væri nú ekki ósáttur við það, þegar gengur á eigiðféð? Talandi um ábyrga Lánadrottna með arðbæriskröfur hluthafa eða almennings að leiðarljósi.


mbl.is Reynt að bjarga Woolworths
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 54941

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband