Axla Ábyrgð

 „Bankarnir eru reknir á viðskiptalegum forsendum af bankastjórnum og þær verða að geta tekið sínar viðskiptalegu ákvarðanir án pólitískra íhlutana.“

Óvenjulegar aðstæður kalla á óvenjuleg viðbrögð.  Þetta er eitt dæmi af mörgum þar sem á að sniðganga fjöldan [neytendur] á markaði með hagsmuni "gamla" fjármálamarkaðarins að leiðarljósi.

Við 300.000- þurfum öflugt Tryggingarfyrirtæki á þjónustumarkaði sem tryggir okkur á neytendamarkaði og öðrum rekstrarmörkuðum lægri iðgjöld og betri þjónustu. Fákeppni: þeygjandi samkomulag 3 aðila um "réttláta" skiptingu á kökunni, er baggi á hina markaðina sem byggja á heilbrigðri samkeppni. Nú er tími til upprætingar og grisjunar. Þegar um fákeppni er að ræða á þjónustu markaði er það hlutverk samkeppnisráðs að tryggja að arbæriskröfur og þjónustukröfur séu þær sömu og þær bestu á mörkuðum þar sem heilbrigð samkeppni ríkir. Hver markaður hefur sínar eigin forsendur og viðmið. það sem gildir um einn markað gildir ekki um annan.  En hagur fjöldans á alltaf að vera í 1.sæti, það er hlutverk æðstu stjórnenda á öllum tímum að tryggja slíkt.

Bankastjórnirnar eiga alltaf að taka sínar ákvarðanir með tilliti til Ráðamanna fjöldans það er forðast pólítískar íhlutanir.  Ég sé ekkert viðskiptalegt við þau uppgjör sem eru í farvatninu.

Fagurt er talað, en lítið er aðhafst. Menn fara í stjórnmál til að hafa áhrif. Nú er tími til að bæta og stokka upp óheilbrigða samkeppni. Það á að vera á ábyrgð þeirra Ráðherra sem vinna í umboði okkar allra.


mbl.is Stórviðskipti borin undir bankaráð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Allir flokkarnir eiga ítök í bönkunum.  Það er pólitík.  Ekki gott.  Ekki á neinn hátt.

Ásgrímur Hartmannsson, 29.11.2008 kl. 16:43

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Ekki er betra ef allir bankarnir eiga ítök í flokkunum.  Ég skilgreini bankamarkaðinn sem slíkan sem þjónustu markað. Og finnst nóg ef væri einn hluthafabanki. Með í upphafi um 330000 hlutum. Hámarks hluthafa eign alltaf innan við 2,9%. Gott því fjárfestar sem eru ábyrgir dreifa áhættunni. Strangar aðhaldskröfur um viðskiptahætti og þjónustig sem væri framfylgt að eftirlitstofnun á vegum ríkisins. . Heiðarleg samkeppni gæti átt sér stað innan bankans og milli útibús t.d. afkastabónus.  Bankastjóri væri kosinn á hluthafafundi. Hann veldi síðan í ráð og nefndir.

Júlíus Björnsson, 29.11.2008 kl. 21:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband