Innlimun er ekki keppni

Trúa á mátt sinn megin eru Íslendingsins gildi.  Vera í neðsta sæti í fallandi ófrjóu, auðlindasnauðu bandalagi gömlu Nýlenduveldanna er ekki kostur það er nauðung.  Umræðan hentar kannski þeim best sem vilja breiða yfir verk glæpa-innherjanna og leiða þjóðina hlekkjaða skuldarklafa inn í gin úlfsins.  Við borgum ekki það sem okkur ber ekki né börnunum okkar né barnabörnunum okkar.  Við reisum nýtt Ísland á gömlum grunni eftir að við höfum hreinsað landið af ósómanum sem ríkt hefur hér síðast liðið tímabil misskiptingar og eignaupptöku.  Fari þeir sem fara vilja mér og mínum að meinalausu.  Það eru Dollarar í ASÍU og USA. Auðlindirnar og mannauðurinn er Íslands.   

Greinlegt að mikil er eftirspurnin allt í einu orðin hjá ESB. Enda verður það skiljanlegra eftir nokkra mánuði þegar kreppan rústar ESB.  

Forgangsröðunar er þörf umræða um ESB kostar tíma og fé sem þarf að fara í þá sem minnst mega sín á meðan stefnan er tekin upp á við.


mbl.is Ísland gæti keppt um að verða 28. ríki ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Ég er heldur betur hræddur um að forvígismenn þeirrar stefnu að ganga inn í ESB séu haldnir sjálfsblekkingu. Þeir mynduðu sér flestir þessa skoðun áður en allt fór á hliðina, og eru svo ákafir í þessu trúboði að þeir nota ástandið núna sem rök í sarpinn sinn. Ef þeir myndu fást til að horfa á hlutina frá öðrum sjónarhól smástund, hvað skyldi gerast þá? Sæju þeir kannski nakinn keisara eins og barnið forðum?

Það fylgir kreppunni viss taugaveiklun - menn leita logandi ljósi að einhverju sem lagar þetta helst strax og telja sér trú um að ESB sé svarið. ESB hefur kosti en bara því miður galla líka, í mínum huga eru gallarnir stærri að vöxtum.

Einar Sigurbergur Arason, 11.12.2008 kl. 04:52

2 Smámynd: Einar Sigurbergur Arason

Jón Frímann: Býst þú við að umsóknarferlið gangi svo hratt fyrir sig að ESB verði bara strax mætt á staðinn að redda öllu hér og rannsaka þetta fyrir okkur?

Endilega rökstyddu mál þitt - hvaða ástæðu hefur þú til að halda þetta?

Einar Sigurbergur Arason, 11.12.2008 kl. 04:54

3 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Það er enginn hagvöxtur í ESB. Þessi Jón Frímann ráfar á milli síðna  og gasprar einhver slagorð  en þekkti ekki muninn á EES og ESB þar til fyrir skemmstu. Sjá hér: 

Sigurður Þórðarson, 11.12.2008 kl. 07:47

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

Það er vaxandi hagvöxtur í Kína með vaxandi kröfur á neytenda markaði.  Kína er ríkasta af gjaldeyri.  Kína er þó það sé ekki fréttnæmt hér að leggja undir markaði: sér í lagi  Afríku. Þetta gera þeir til að tryggja sér auðlindir.  Yfirborganir þeirra á hráefni og matvöru er þegar farið að valda hækkunum í Evrópu sem getur nú ekki lengur treyst á fríverslun við fátækari ríki heims.

Stóru vandamálinn í heimunum hér fyrir um 20 árum: Mannfjöldafjölgun og matvælaskortur eru en stærst.

Þrjár risa viðskipta heildir eru að myndast: ASíA[Kína], AMERÍKA [USA] bæði með saman með töglin og haldirnar í Litlu Asíu og Afríku. Aftast á sprettinum er ESB [Frakkar, Þjóðverjar] sem stefnir í að mynda heild með Sovétríkjunum gömlu [Rússland].

Standi Ísland fyrir utan innlimun glatast engin tækifæri heldur getum við beint viðskiptum okkar á hverjum tíma þangað sem þörfin er mest og best er borgað.

ESB nægir að Íslendingar borgi skaðann sem glæpa-innherja útrásarinnar ollu hennar félagsríkjum.  Skaðinn sem Íslenska þjóðin var fyrir leiðréttir hún sjálf ef ekki strax þá alveg örugglega eftir næstu kosningar.  ESB-sinnar geta reynt að tefja málin en réttlætið sigrar fyrr en síðar.

ESB innlimun bætir stöðu skrifræðiskrata[úr röðum stjórnmálamanna]: fjölgar sætum í ráðum ESB. En þjóðin situr eftir með skuldaklafana og minnkand tækifæri. Við hin [almenningur] verður að sæta sig við hlutskipti eins og fyrrverandi lönd Austur-Evrópu.

ESB hefur nefnilega á skipa risa keðjuhringafjárfestum sem verður í lófa lagið að kaupa upp alla bestu bitanna úr ehf. Ísland.

Júlíus Björnsson, 11.12.2008 kl. 13:35

5 Smámynd: Júlíus Björnsson

ESB innlimun ofurlauna con artistarna minna áberandi í meira fjölmenni.

Júlíus Björnsson, 11.12.2008 kl. 23:43

6 Smámynd: Júlíus Björnsson

Mér finnst ansi margir hljóma hér á nótum hans Frímanns.  ætli þeir eigi sér allir sama guðföðurinn?  

Júlíus Björnsson, 15.12.2008 kl. 02:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 54942

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband