Upptaka Dollars strax

Friðrik sagði að það hafi verið gæfa sjávarútvegsins að njóta ekki ríkisstyrkja og það hafi skipt sköpum. Hann sagði að það væru blikur á lofti um fjármögnun sjávarútvegsfyrirtækja en hann sagðist ekki sjá það fyrir sér að það myndi nokkurn tímann gerast aftur að sjávarútvegurinn yrði upp á náð og miskunn ríkisins kominn.

Sterkur gjaldmiðill styður sjálfstæða arðbæra útvegsstefnu. Engar meiri gengisfellingar, óhagstæðar lánafyrirgreiðslur eða afskriftir lána. Dollar strax og stefnumótun til framtíðar borgar sig. Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn. 


mbl.is Aldrei aftur í faðm ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Jafn skuldsett land og Ísland getur ekki tekið upp mynt einhliða, því um leið er það að breyta öllum skuldum í erlenda mynt án þess að eiga þá mynt til að greiða skuldina til baka. Með inngöngu í Evrópusambandið værum við að fá seðlabanka evrópu sem bakhjarl, sem myndi skaffa okkur evrur þegar að það þyrfti að koma peningum í umferð - því er það í raun eina raunhæfa leiðin til að losna við krónuna.

Ekvador er að gefast upp á því að vera með dollar, einmitt vegna þess að þeir geta ekki skaffað dollara til að borga skuldir, og greiniegaraðilar segja að þar með sé dollaravæðingin þar sjálfhætt. Það er því augljóst að við Íslendingar munum aldrei geta staðið undir því að losa út allar skuldir landsins í dollurum!

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 27.12.2008 kl. 02:06

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Skuldir Íslands eru nú þegar í erlendri mynt. Tekjur okkar til að borga skuldir eru allar í erlendum myntum.  Seðlabanki Evrópu er ekki góðgerðarstofnun.  Til að ganga inn í ESB þurfum við að uppfylla skilyrði Seðlabanka ESB. Íslendir eiga auðlindir sem greiða fyrir lánum meðan við erum að borga niður skuldir [að mestum hluta til komnar vegna ESS og væntinga um innlimun í ESB]. Það að halda úti Krónu veldur kostnaði og spillingu sem við ráðum ekki við. Til að halda öllum mörkuðum opnum [ minnka áhættu og auka arðsemi] er Dollar sterkast gjaldmiðill sem völ er á. Við göngum við ekki inn í ESB því að myndi einfaldlega skerða greiðslu möguleika okkar sem þjóðar [Erlendir auðhringar myndu sölsa undir sig alla bestu bita þjóðarbúsins þar ef við myndu ekki lengur vera einráð um eignarhald á þeim] og ESB er ekki einu sinni í skakk búið til að bjarga sínu eigin skinni um þessar mundir.      

USA fjárfestar í ESB eru búnir að kaup sér tryggingar vegna sinna fjárfestinga fyrir hugsanlegu hruni.

Sá standard sem beauroK-ratarnir í Bruselles telja 98% Íslendinga geta sætt sig við er nokkuð sem nú vegna ESS um 33% þjóðarinnar sætta sig ekki við. [millistéttin of hálaunuð [miðað við 20-30% hærra gengi krónunnar], Efri millistéttin of fjölmenn[miðað við 330.000 íbúa svæði].

Júlíus Björnsson, 27.12.2008 kl. 04:21

3 Smámynd: Jónas Tryggvi Jóhannsson

Í fyrsta lagi þurfum við að uppfylla efnahagsleg skilyrði til að taka upp evru, ekki til að ganga í evrópusambandið - við þurfum aðeins að vera fullvalda þjóð til þess því Evrópusambandið er samstarf sjálfstæðra fullvalda þjóða. Stór hluti skulda landsins eru í krónum, og allt bankakerfið er í krónum - og að myntbreyta því yfir í erlenda mynt þýðir t.d. að þeir aðilar sem eiga jöklabrefin hér á landi, sem eru 400 miljarðar af ríkisskuldabrefum, eiga að fá þau borguð í erlendri mynt.

Hvar á Ísland að fá svona mikið af erlendri mynt? Þrátt fyrir að tekjur okkar séu í erlendri mynt, þá er ekki til varasjóður til að geta staðið við þær skuldbindingar sem landið hefur nú þegar! Á að efla til stórfelldrar lántöku og steypa þannig þjóðarbúinu í enn meiri skuldir? Hver heldur þú að muni lána Íslendingum í þessari stöðu? það hefur verið nógu erfitt að fá neyðarlán til að halda þjóðarbúinu gangandi - og það eru settar á miklar gjaldeyrishömlur til að koma í veg fyrir að nákvæmlega þessir peningar streymi úr landinu. Krónan mun lækka mikið næstu mánuði þegar þetta fjármagn er að fara út úr landinu, því þetta eru peningar sem vilja komast út - en ef við tökum upp erlenda mynt núna þá erum við að festa gengið og um leið að tryggja að þetta fé fari úr landi á mun hærra skiptigengi en það stefnir í að það muni fara á. Þetta er svipuð staða og Ekvador er að lenda í; þeir eiga ekki erlenda mynt fyrir skuldbindingum sínum - og þess vegna eru þeir að hætta við dollaravæðingu sína - og afhverju ættum við þá að byrja á okkar?

Íslendingar eiga auðlindir, hugvit og mannafl til að borga af lánum og mynda hér hagvöxt aftur í framtíðinni; hinsvegar þarf gott umhverfi fyrir fyrirtækin og heimilin hér á landi. Það verður ekki gert með því að gera þjóðina tæknilega gjaldþrota á einni nóttu með einhliða upptöku erlendrar myntar. Það verður frekar gert með því að tengjast því markaðssvæði sem við eigum meirihluta viðskipta okkar við enn frekar - og taka upp þá sameiginlegu mynt sem okkur stendur til boða!

Sama þótt fólk spái efnahagslegum samdrætti í Evrópusambandinu í heild, þá verður fólk að gera sér grein fyrir að við búum í landi þar sem hagvöxtur er -10%, sem er einsdæmi í heiminum! Mörg lönd innan Evrópusambandsins, svosem Írland og Finnland hafa haft mun meiri hagvöxt en Ísland á síðasta áratugi - og eru að sjálfsögðu ekki að fara næstumþví jafn illa útúr kreppunni og við, og þar þakka Írar evrunni og ESB fyrir.

Ég skil ekki hvað þú ert að fara með erlenda auðhringi - ég hef ekki séð að innlendir auðhringir hafi reynst okkur neitt vel, og ég myndi glaður vilja fá meiri erlenda starfsemi hér á landi. Erlendar matvöruverslanir eru efst á óskalistanum, Bauhaus væri ágætt líka og helst erlenda aðila með umboð fyrir sölu á tónilst og bíómyndum til að þetta sé ekki allt eitthvað eitt baugsveldi hérna á Íslandi.

Jónas Tryggvi Jóhannsson, 27.12.2008 kl. 10:21

4 Smámynd: Júlíus Björnsson

 svosem Írland og Finnland hafa haft mun meiri hagvöxt en Ísland á síðasta áratugi - og eru að sjálfsögðu ekki að fara næstum því jafn illa útúr kreppunni og við, og þar þakka Írar evrunni og ESB fyrir.

Þú gætir talið um miklu fleiri lönd þar innleidd hefur verið hagræðing af hálfu ESB. Gleymdu því samt ekki að þessar þjóðir áttu almennt ekki til hnífs og skeiðar áður. Hagvöxtur úr mikilli örbrigð til skárra ástands getur sannanlega mælst mikill í prósentum. Fjárfestingarkostnaður sem virðist ekki ætla að skila sér í þessum fyrrum fátækralöndum. Ég kannast nú bara við einn keðjuhring í matvörugeiranum. 

Þjóðin er nú þegar gjaldþrota og nýtur liðsinnis annarra þjóða, sjá IMF, til að fá frest til um umbreyta auðlindum sínum í afborganir. 

Fákeppni og keðjuhringir reynast neytendum almennt aldrei vel. Dverg ríkið Ísland og efnahagsvæði þess hefur sín eigin viðmið [330.000 íbúa svæði í ESB].   ESS er ekki að virða þau og þess er Ísland farið að líkast lágvörusamfélagi sem fer saman við láglaun svo almennur kaupmáttur fari ekki út fyrir ríkjandi viðmiðunarmörk þjóða og bandalaga með lágar þjóðartekjur og mikla misskiptingu í launatekjum.  

Júlíus Björnsson, 27.12.2008 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 54923

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband