Ætli stjórnvöld taki mark á fyrrverandi forsetisráðherra þó sænskur sé?

"Þið verðið að endurheimta trúverðugleikann, þið verðið að hafa allt bókhald fjármálafyrirtækjanna opið og læsilegt fyrir almenning. Allt verður að vera uppi á borðinu, sagði Göran Persson, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, sem hélt ræðu í hátíðasal Háskóla Íslands í dag." Skv. RUV 18.00

Þetta er það sem 99,9 % þjóðarinnar hafa krafist frá upphafi.  Fyrirlitningin sem felst í að leyna þá sem ætlast er til að borgi brúsann þegar upp er staðið er ólýsanleg. Það er hægt að byrja á morgun að setja bókhöldin á netið. Það getur ekki verið að menn hafi eitthvað saknæmt að fela og tæknilega eru öll fyrirtækin gjaldþrota og því um enga tæknilega samkeppnisstöðu. Við eigum Ísland sem borgum skuldirnar. Og eigum íbúðarhúsnæðið sem var veðsett í þágu ofurgræðgis gengisins. Við viljum ekki viðreisn þess sem var. Við viljum heilbrigða samkeppni  því fleirri sem keppa því skemmtilegra.

Þrælar hafa ekki keppnisskap.

Sækið þið strax féð ykkar þið megið ekki láta þá sleppa: sagði Persson líka.

Hvað er margir komnir undir lás og slá? 


Dollar strax

Hér eru aðstæður allt aðrar. Íslenska leiðinn byggir á Íslenskum forsemdum og sú sænska á sænskum. Rétt er að mun harðar þarf að ganga fram í að hreinsa til. Sér lagi að uppfæra lagaramma til sæmræmis við það þá, um viðskipta og fjármál, sem eru í USA og Great Britain . Einn stór banki og sterkasti gjaldmiðilinn spara mikinn kostnað sem nýtist útflutningsmörkuðum að komast sem fyrst úr skuldaklafa ofurgróða gervitímabils.


mbl.is Íslendingar mega ekki bíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þagnarskylda

Það er óbyrgt að ætlast til að Davíð Oddsson bregðist þagnarskyldu: sem hlýtur að vera þess eðlis að þjóðarskaði gæti hlotist af. Það verður að dæma Seðlabankastjóra til að tala: létta af honum þagnarskyldu. Reka hann þá ef skýringin er ekki nógu góð.


mbl.is Davíð skýri orð sín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning um Siðferði ekki hæfni

Val KPMG veldur spurningu um vanhæfni alla hinna fjölmörgu sem eru starfandi á markaði og hafa að mestu staðið fyrir utan ofurgróða gervitímabilsins.

Sennlega í öll þessu uppgjörsferli eru um dágóða tekjumöguleika að ræða. Er ekki tími til að röðin sé komin að öðrum til að græða. Því fleiri sem græða því betra, ekki satt?


mbl.is Farið yfir störf KPMG fyrir skilanefnd Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árangurstengd laun

Ég held að það væri gott að innleiða árangurstengd laun hjá öllum forstjórum. Hjá launaþega samtökum er varla um áhættu að ræða. Lámarkslaun ættu að vera grunnlaun. Heiðurinn spilar þarna stórt mál inn í. Laun annarra forstjóra ættu líka að vera árangurtengd og innfalið í þeim kostnaður  við rekstur  hluta yfirbyggingar: Svo sem risnu, ritara og nánustu aðstoðarmanna. Það myndi skila arðbærara fyrirtæki því því nettó tekjur forstjórans færu þá eftir hæfni hans að finna jafnvægi milli risnu, kostnaðar yfirbyggingar og hagnaðar í rekstri. Ef þetta færi ekki saman myndu hluthafar, eigendur að sjálfsögðu finna sér nýjan forstjóra með tilheyrandi. Hjá ríkisfyrtækjum gæti þetta komið í stað einkavæðingar sem á varla rétt á sér nema þegar ekki er um fákeppni að ræða.


mbl.is Laun stjórnenda helstu lífeyrissjóða munu lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vit-laus

Vitur nærri getur, Reyndur veit þó betur. Hér er um hvorugt að ræða. Í barnaskóla falla menn nú víst ekki lengur. Í stjórnmálum í venjulegu árferði má búast við að kjósendur séu umburðarlyndari. Vit-leysa ráðherrans tengist honum greinilega og það er til...

Vonir á óvissutímum

Eru ekki nokkur vissa um atvinnuleysi og lækkun kaupmáttar á næstu árum? Hér áður fyrir daga út/innrásar var ekki mikið traust á íslenskri krónu utan Íslands: örvasa gjaldmiðill og vægast sagt flöktandi gengi og Ísland lítt þekkt. Nú er aðstæður aðrar:...

Einstaklingar firra sig ábyrgð

Þetta er að hluta til gert með samþykki aðallánadrottins: viðskiptabankans. Sem telur þessa niðurstöðu þjóna hagsmunum sínum best. Persónulega finnst mér að allt svona eiga að vera uppi á borðum. Bankinn hefði örugglega ekki samþykkt þetta ef hann hefði...

Dómgreind Breta vegur Þungt.

Dómgreind USA og Breta vegur þungt: lönd sem telja til þeirra, þar sem efnahagslegur stöðugleiki ríkir. Íslenskur viðskipta- og fjármálalagarammi annar en gengur gerist hjá þessum ríkjum. Það sem mun dæmast fjámála glæpur þar er ekki sakhæft á Íslandi....

Ákveðin mistök hafi verið gerð

"Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra, sem var sjálfur handtekinn á þingpöllunum fyrir mótmæli á námsárum sínum í háskólanum, segir atburðina í dag rifja upp gamlar minningar þegar hann hafi haldið ræðu á þingpöllum meðan 250 aðrir nemendur héldu...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Maí 2025
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband