Færsluflokkur: Evrópumál

ESS er upphafið

Í skjóli samningsins um evrópskt efnahagssvæði, var Ísland gangrýnilaust  opnað fyrir erlendum fjárfestum [m.a. KMPG,  Deloitte Touche Tohmatsu.]. Íslenskir fjárfestar fluttu svo mikið af íslenskum fjármun í vafasamar áhættu fjárfestingar innan ESB [Sér í lagi austurpartinum]. Fákeppni var hampað og ýmsum aðilum á íslenskum markaði var gert kleyft að gleypa þá minni í sig.  Ofurstærð sumra fyrirtækja [fjármálasamsteypa, keðjuhringa, Kauphallar Íslands] varð of stór biti fyrir Dvergefnahagssvæðið Ísland. Sem í framhaldi gerði kröfu til stærri einkabanka,sem væru í samræmi við ofurgræðgina. Öllum meðulum var beitt m.a. annars ólöglegum sem öðrum eru að koma upp úr leyndinni. Ofurgróðatímabilið eftir  á séð  má líta á sem fórnunnar kostnaði á stærra altari : innlimunarinnar í ESB. Kostnaður sem er strax farinn að skilja sér og við sem þjóð, að fáum jafnari undanskildum,  mun halda áfram að finna fyrir næstu árin í skertum lífskjörum.

Er von að sjóði upp úr. Samkvæmt vestrænum gildum leyfist fjölskyldum að vernda heimili sín.


mbl.is Óttast að uppúr sjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnutíma allra í 35 stundir á viku

Í ljósi stöðunnar í alþjóðamálum: vaxandi atvinnnuleysi og fjölgunar hjá þjóðinni [krepputímaeinkenni] þá er ágætt að einbeita sér að hinu heimatilbúna vandamáli Íslendinga sem bættist við, með það halda fólki frá því að mæla götunnar.

Heimskreppa er í niðursveiflu, bjartsýnustu menn innan ESB fastsetja að samdráttur vari minnst eitt ár.  Sem kannski raunsætt mætti fastsetja 3-4 ár. Áhyggjur af atgerfisflótta eru því að mínu mati ekki í myndinni, vegna þess að lítil eftirspurn er til staðar utan Íslands.

Ýmsar aðgerðir eins og stytta vinnutíma allra í 35 stundir á viku auka framleiðni per einstakling og gætu aukið þörf fyrir starfsfólk. Samfara því að fyrirtækja samsteypur væru leystar upp í sjálfstæðar einkareknar einingar. Nauðsyn brýtur eða gerir kröfur til setningu nýrra laga og reglugerða. Ég þekki Íslendinga af miklu langlundargeði en þegar það þrýtur þá getum við beðið guð að hjálpa okkur. 

Staða íslenskra efnahagsmála er hliðstæð því sem gerist í heimstyrjöldum en stjórnarhættir í engu samræmi. Það greinlega dýrt að gangast í ábyrgðir fyrir óverðugar fjármála samsteypur í einkarekstri.

Ríki og sveitarfélög geta byrjað á því að borga ekki fyrir auka eða eftirvinnu.


mbl.is Íbúum fjölgaði um 2,2% á einu ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki svo svart í USA

Það er enn von í USA þó ESB sé svartsýnt. Minna skrifræði sneggri viðbrögð fjölskyldur í fyrirrúmi.
mbl.is Obama kynnir efnahagsaðgerðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

SÍF

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður SÍF, eigandi Serafin. Hann mun hins vegar hafa haldið þessum eignatengslum leyndum fyrir stjórn SÍF, þegar ákveðið var að selja Iceland Seafood til Sjóvíkur.

Mikið hefur oft grunað að einfaldleikinn sem felst í að leggja áherslu á magn frekar en gæði hafi alltaf verið í farabroddi hjá SíF.  Í þágu heildarinnar tel ég að betra væri að selja aflann í á fleiri og efnameiri markaði í minna magni á hvern markað. Það myndi tryggja fleiri sölutengd störf en virðisaukinn yrði meiri þegar upp er staðið. Netið hefur breytt öllum sölu möguleikum. Kannski eru svona Risasamtök kannski ekki allaf að skila framleiðendum hámarkshagnaði á hverjum tíma. En skila stórninni drjúgum skilding?

Ef leynd er annarsvegar  við hverju er þá að búast?


mbl.is Leyndi eignarhaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þriðja [efnahags]heimstyrjöldin?

Hann varar við því að heimurinn gæti staðið frammi fyrir algjöru fjáramálahruni, sem hafi ekki sést síðan í Kreppunni miklu.

 

Allar styrjaldir heimsins hafa snúist um efnahagsmál: Landrými og tilheyrandi náttúruauðlindir.

Spánn er búinn með gullforðann. Rússar í einkavæðing ESB búnir að yfirtaka Ríkis Olíufyrirtækið ásamt samböndum til S-Ameríku. Gasið mun líka verið komið í hendur Rússa. 

ESB steingeld hvað náttúruauðlindir varðar og barneignir.

Óþarfa bjartsýni stjórnvalda er fyrsta skrefið í því að reyna örva neyslu.  Öll ríki ESB stynja.

Ef þetta er ekki sagan að endurtaka sig hvað er þá að gerast?

Þriðja [efnhags]heimsstyrjöldin: Rússland ESB  og USA ASÍA [Litla ASÍA AFRÍKA]

ESS væri nú ekki gott að vera laus við hann?


mbl.is Seðlabankastjóri Spánar svartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Málþóf sem getur staðið í tugi ára.

Samkvæmt lögunum verður íslenskum félögum, einkum íslensku bönkunum, gert mögulegt að höfða mál gegn breskum stjórnvöldum fyrir að frysta eignir Landsbanka Íslands á grundvelli ákvæða í hryðjuverkalögum og knýja Kaupþing Singer & Friedlander í greiðslustöðvun.

Hvað með fyrirgreiðslu um málsókn á hendur þeim sem að báru ábyrgð á rekstri annarra íslenskra einkabanka.  Í ljós þess hve lítið fæst fyrir eignir má ætla að þessir bankar hafi verið fullir af ástarbréfum?  Alla Íslendinganna sem treystu þeim fyrir sparnaði sínum til ávöxtunar. þó þeir hafi tapað vöxtunum réttlætir það ekki að fá ekki höfuðstólinn verðtryggðan til baka. Hvað um ábyrgð Íslenskra einkabanka á erlendri grund að lofa innlánsvöxtum, umtalsvert hærri en viðmiðanir þarlends heimabanka, og enginn ábyrgur myndi telja að hægt væri að standa við í samhengi alþjóða efnahagsmála.

Ef Bretar hafa ekki málstað í bakhöndinni má þá líka segja það að þeir beri ábyrgð á öllu hruninu?

Og væri því ekki óþarfi að leggja allar skuldirnar á íslensku þjóðina, þegar hægt væri að fá lánað út á skaðabætur af hálfu Breta.

Allir sem eiga raunverulegt eigið fé til greiðslu afborganna geta fengið lánað meðan eiginféið er til staðar.  Um eigið fé banka gilda ströngustu reglurnar.


mbl.is Fé til málshöfðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draga úr kostnaði Skattgreiðenda!

 

Kostnaður vegna þingmanns per skattgreiðanda á  Íslandi, fyrir var heimsmet í bruðli. Aðstoðarþingmenn; til hvers er kjósendum ekki treystandi til að velja þingmenn sem fara eftir samvisku sinni?   Að mínu mati er vandamál hluti af ESS pakkanum: skrifræðið og reglugerðirnar.

Hin hefðbundna Íslenska þinghefð felur í sér gerð einfaldra auðskiljanlegra laga sem varða almanna hagsmuni.  Þetta er alls ekki spurning um nauðsyn þetta er spurning um arðbærissjónarmið: velja hæfasta fólkið á hverjum tíma, og lækkun skatta til að auðvelda þeim sem baka brauðið gerðina.  

 Allir þurfa að sníða sér stakk eftir vexti, dvergríki sem stærri og ópersónulegri með allt aðra og fjölbreyttari hagsmuni, sem byggja til dæmis á auðlindaskorti og atvinnuleysi.  Við eigum hlutfallsleg mikið fé bundið í landi og þjóð: auðlyndum okkar, og þurfum ekkert láta það í hendur annarra fjárfesta, heldur losa það úr viðjum, eftir þörfum,  með fullri sjálfstjórn á okkar efnahagsmálum.

Lágvöru markaðsfræðin getur verið heima hjá fjárfestunum. Við erum hátekjuþjóð og eigum öll að hagnast á því, í ljósi reglna sem tryggja jöfn tækifæri á okkar forsemdum.  Það sem hefur vantað á, er að fjárfesta í fólkinu sem bakar brauðið og laða í þau störf afkastamikið og greint fólk þetta er orðin hlutfallslega lítil stétt í dag og er ekki dýr fjárfesting en almennt há laun valda meiri virðisauka og meiri hagvexti.

Frasinn sumir hafa ekkert með peninga að gera því þeir eyða honum í bara vitleysu, á sannarlega við núna um sumar stéttir. Læknir lækna sjálfan þig. Í stað þess að flytja hér inn fólk til að henda því út þegar efnahagstjórn bregst.  Er hægt að fækka nemum í fræðasetrum  á þenslu tímum þegar jafnvægisstjórnun bregst.


Jólagjöfin frá Tryggingarfélaginu.

Var að opna Jólapóstinn.

Fasteignatrygging mín hækkar 36%

Bifreiðartygging um 42%.

Tyggingarfélögin er mín vísitala um hvað stjórnvöld hafa að markmiði sínu árið 2009. 

Verðbólga minnst 36%

Bifreiðatrygging án afsláttar hækkaði um 16%.

Með því að lækka viðskiptaafsláttinn  tekst þeim  að minnka ráðstöfunar tekjur mínar. Mjög skemmtileg Jólagjöf.

Einkabíll er allmennt ekki nauðsynlegur í ESB. Sem sagt óeðlilegur hluti í CIP Íslendinga.


Hagfræði

Allir Hagfræðingar sem stíga í vitið gátu fyrir mörgum mánuðum gert sér grein fyrir því að bankarnir voru of stórir til að geta þjónað hagmunum Íslensku þjóðarinnar.  Þeir sem högnuðust og báru ábyrgð á gerðum þeirra vissu alltaf hvernig gæti farið.

Gott er að vera vitur eftir á. Af hverju drógu Bankarnir ekki saman seglin fyrir 15 mánuðum síðan þegar brunútsala var fyrirsjáanleg [selja eignir og draga úr starfsemi] ef þeir voru fullvissir að þeim yrði ekki refsað fyrir það síðar? 

það hvað raunverulegar eigur þeirra voru litlar er í samræmi við það sem fæst fyrir þær á Brunaútsölu. Sem er glæpsamlega lítið þegar um bankastofnanir er að ræða að mínu mati.

Þjóðinn á ekki að borg fyrir sukk annarra,  hvorki í einkalífi eða rekstri. 

Í raun er langt síðan fyrirtækin urðu of stór fyrir bankanna sbr. Fákeppnina sem leiddi af ESS. 


mbl.is Seðlabankinn varaður við í júní
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérhver sem með framferði sínu og háttsemi...

Sérhver sem með  framferði sínu og háttsemi stofnar öryggi eða orðspori þjóðarinnar í hættu er að sjálfsögðu sekur um alvarlegan glæp. Tíðarandinn nú er sá sami og allt hefur verið og enginn dómari getur hundsað það.  

Ef það er rétt að skuldir með veði í kvóta eru afskrifaðar en kvótinn ekki seldur á uppboði eða afhentur lánadrottnum til ráðstofunar er það á alþjóða mælikvarða mjög alvarlegur glæpur.

Mér kemur í hug bylting að Kommúnískum hætti: Vopnuð markaðsetningu þar sem er eignaupptaka af ofurlaunastétt á eigum þjóðarinnar:sem ekki þiggja eða þáðu ofurlaun.

Hr. Ólafur stendur með sínu fólki og verndar það eins og hans er vaninn.


mbl.is Forseti hafni fjárlagafrumvarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Jan. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.1.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband