Skattar á innistæður skila slatta.

Síðast þegar ég gáði voru vextir allra innlánsreikninga [líka gjaldeyris], að undanskildum ofurupphæðum eða verðbólgutryggðum bundum í 3 ár, neikvæðir það er höfuðstólinn rýrnaði. Samt sem áður eru 10% skattar af skertri verbólgutryggingu höfuðstóls [innistæðunnar]. Það má því segja að Íslenskir Bankar og skatturinn græði á því þegar þegar Íslendingar reyna að spara. Borga inn á öll verðtryggðlán er besta sparnaðarleiðinn í augnblikinu.

Almenningur þarf að eiga sína eigin ríkisstjórn og banka í framtíðinni það er augljóst. Það augljóst að þær íslensku kennitölur sem eiga sameiginlega hagsmuni með ESB-auðhringnum eru mjög fáar og alls ekki treystandi fyrir hagsmunum 98% þjóðarinnar.

Gleymum ekki að ESS kynslóðin sú sem var alin upp við regluverkið er varla andlega eða líkamlega mótuð til að ganga undir þjóðarsátt [sérstakur Íslenskur undirbúningur er nauðsynlegur]


mbl.is Vextir 22% af skattfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir  sagði:

Mér finnst að ef á annað borð er verið að efna til allsherjaratkvæðagreiðslu í landinu og kalla alla að kjörborðinu séu mjög sterk efnisleg rök fyrir því að þá fari fram þingkosningar samhliða. Það hefur verið kallað eftir því að umboðið sé endurnýjað og ef við erum að sækja umboð til þjóðarinnar til að fara í svona viðræður eru einhvernveginn sterk rök sem hnígja að því að það sé haft víðtækara," segir hún í samtali við mbl.is. 

 Mér finnst að Sjálfstæðisflokkurinn eiga að sleppa hendinni af Samfo og leyfa henni að spreyta sig í kosningum.

ESS með regluverki sínu er var tekið upp hér í dvergefnahagsríkinu Ísland og hrunið er alveg  nógu mikil kynning á því hvernig er að tengjast ESB náið. Sá flokkur, sem getur komið fram með sannanlega áætlun sem eykur hagvöxt og eignamyndun heimilanna íslensku almennt, til langframa, er verðurgur til að vera í forsvari fyrir þjóðina til framtíðar. 


mbl.is Alþingiskosningar samhliða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er maðurinn að fara?

Þó er rétt að árétta að skylda forsetans hefur í vaxandi mæli verið að veita íslenskum hagsmunum, vísindum og listum brautargengi í veröldinni, leggja lið á mörgum sviðum. Það var þáttur í kjöri mínu, umboðinu sem þjóðin veitti mér í sérhverjum kosningum

Nýársávarp forseta Íslands

Starfsskyldur embættis Forseta Íslends eru vel skilgreindar samkvæmt stjórnarskrá og er þessi ekki þar á meðal. Ég tel að skyldum hans hafi vísvitandi verið stillt í hóf til að forsetinn gerðist ekki of gírugur til launa.

Hinsvegar skiptir þessi játning mestu máli.

Á liðnum árum hafa margir gert mistök, stór og smá, og það er áríðandi að hver og einn leiti þeirra og viðurkenni, dragi af þeim lærdóma. Það hef ég reynt að gera, meta heiðarlega hvernig ég gekk of langt í málflutningi og liðsinni við starfsemi íslenskra banka og fjármálafyrirtækja erlendis, fundið hve áríðandi er að gaumgæfa betur gagnrýnisraddir og grasrótina, að efinn verður ætíð að vera með í för, einkum þegar hætt er við að kappið skyggi á forsjána; mikilvægt að muna þann gamla sannleik að hin raunverulegu verðmæti eru jafnan traustari en pappírsgróði.

Ég tel að Forseti Íslands hver sem er hafi ekki sjálfdæmi þegar hann gengur of langt. Það er líka gert ráð fyrir því að slíkt geti gerst í sömu starfsskrá.


Gleðlegt nýtt ár með þökkum fyrir það gamla

Nú er fjallað um það hvort Íslendingar eigi að stíga skrefið til fulls og gerast aðildarríki Evrópusambandsins. Þegar við tókumst síðast á um slík mál, um og upp úr 1990, var margt öðruvísi umhorfs í heiminum. Niðurstaðan varð sú að stíga það skref að gerast aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu. Ég tel að það hafi gefist vel

 

Mörgum öðrum stéttum [þolendunum] finnst regluverkið óþolandi og vill halda í áræði og forfeðra ættarhyggju og snúa bökum saman. Foræðishyggju og ráðstjórn þar sem  fáir einstaklingar fá að njóta sín beri að forðast.  Mér finnst því það hafa gefist vel, til að sýna fram á ekki beri að halda áfram sömu braut [fyrir ESS], heldur bakka þangað þegar raunveruleg eignarmyndun átti sér stað hjá heimilunum og hagvöxtur þeirra blómstraði, og byrja svo aftur á íslenskum forsemdum, í ljósi breyttar heimsmyndar og netsins.

Ræðan endurspeglaði mörg góð sjónarmið og ásættanleg sjónarmið líka en flokkurinn er stór. Geir hefur staðið sig eins og hetja í sambúðinni og þá er ég ekki að tala um hans einkalíf sem varðar ekkert um.

Blokkvinir og allir hinir: Gleðilegt nýtt ár með þökkum fyrir það gamla.


mbl.is Brýnt að herða reglur um hegðan á fjármálamarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andlegt ofbeldi

Andlegt ofbeldi og kúgun er síst betri þó friðsamleg sýnist. Kasti þeir steinum sem búa í glerhúsi.

Hverjir eru verðugir fulltrúar Íslands er spurning.  Mótmælendur 98%, þjóðarinnar þessi sem borgar skattanna og skuldirnar með aleigu sinni, eru vissulega fulltrúar þjóðarinnar þó sumir þeirra séu  kannski ofbeldishneigðir að eðlisfari og sumir þeirra sitji enn heima.  Ofbeldi leiðir af sér ofbeldi. Mikill er ábyrgð stjórnvalda  og þeirra sem eiga að kunna að hemja skap sitt.  Á tímum  þegar þörf er á þjóðarsamstöðu um sérhagsmunamál íslensku þjóðarinnar. Hátekjur almennt þannig að allir geti sparað. Eitt smáfyrirtæki hámark á einstakling. Heimilishagvöxt í stað Hagvaxtar ESB auðhringa.

Er algjört ábyrgðarleysi af mönnum í æðstu stöðum að gefa yfirlýsingar um hverjir séu fulltrúar þjóðarinnar eða ekki, því 98% eru búinn af nóg af allri skiptingu þjóðarinnar síðust 20 ár. Saman stöndum vér sundruð föllum vér. Íslendingar voru búnir að vera ein þjóð í meir en 1000 ár og gekk almenning hér síst verr en þeim í þjóðabandalögunum. 

 

Á efnahagsstríðstímum þarf þjóðin á því að halda að á hana sé hlustað. Það dettur engum í hug að þeir sem vissu ekki betur séu sekir um ábyrgðarleysi.   Hinsvegar treystir enginn margsvikin kjósandi sama stjórnmálamanni aftur og nóg er skynsömu fólki í báðum stjórnarflokkum sem er betur fallið til stjórnar í harðæri.  Fólk sem persónugerir sig of mikið á erfileikatímum gerir lítið úr vaxandi þjáningum almennings: 98% þjóðarinnar. Menn viðurkenna mistök með því að treysta öðrum. Sá sem treystir öðrum og hefur ekkert að fela honum er treystandi.  Góðæri er ekki mælikvarði á góða leiðtoga það hefur komið upp á daginn. Frú Vigdísi virtist auðvelt að þekja þjóð sína og fór persóna hennar vaxandi með hverjum deginum sem leið. Allir verða að þekkja sinn vitjunartíma. 


mbl.is Mótmælin áttu að vera friðsamleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðsamleg veðsetning Íslensku þjóðarinnar?

Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar og utanríkisráðherra, sagðist efast um að þeir sem mótmæltu fyrir utan Hótel Borg væru fulltrúar íslensku þjóðarinnar. Hún sagðist gera skýran greinarmun á þessum mótmælum og friðsamlegum fjöldamótmælum á...

Dollar sterkur Króna veik

Heimska eða greind? Af hverju Íslendingum voru sett þau skilyrði að þiggja lán IMF. Það er í samræmi við að orðum þeirra sem eru í forsvari fyrir fjármálum Íslendinga er ekki treyst. Það er í samræmi við að hér ríki spilling og óráðsía í kerfinu. IMF er...

98% þjóðarinnar

98% þjóðarinnar sem erum hvorki táknræn eða á ofurlaunum verðum að gefa núverandi stjórnmála- og dómsmála stétt frí næstu 8 árin. Stofna bráðabirgða þjóðarflokk til að hreinsa til og taka upp gamlar reglur og setja nýjar sem tryggir, okkar allra, velferð...

ESB aðlögun

Ljósir punktar í stöðunni fyrir ESB-sinna og ESB fjárfesta[erlenda auðhringa]. Almennar ráðstöfunar tekjur minnka um 33% ef það nægir portúgölskum almenning og írskum þá ætti það ekki að vera oflítið fyrir íslenskan. Skrifræðið og regluverk ESS festir...

Efnahagsstríð eða heimskreppa

Baráttan um auðlindirnar. Alltaf þrengir meir og meir að gömlu Evrópu nýlenduveldunum, hvers íbúar viðhalda sér mest nú til dags með fólki úr Litlu Asíu, og ekki trúi ég því að gömlu nýlendurnar sakni þeirra mikið. Landsframleiðsla ESB verður aldrei...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband