BeauroK-ratar.

Hætt er við að flokkurinn klofni hvernig sem Evrópumálin lenda.

Sjálfstæðisflokkur jafnra tækifæra sem hafnar innlimun í ESB á að boða til kosninga strax og mun fljótt ná sér á strik aftur. Fylkingin mun hvort sem hún verður í næstu stjórn eða ekki: þurrkast út.

Hver dagur fyrir Sjálfstæðisflokk í "samstarfi" við tvíhyggjuflokk  tækisfærisinnanna  er vatn á áróðursmyllu Fylkingar.

Þjóðin þarf fólk með heilann á réttum stað til að leiða Íslendinga úr vörn í stöðug almenn hátekju lífskjör á ESB-mælikvarða.  Nettó landsframleiðsla á nýfæddan Íslending er um 500.000 kr. á mánuði. Er þá ekki tekið með svört framleiðsla eða heimavinna. Tekjuskiptinga strúktúr eða mat á stöðugleika í ESB er ekki boðlegur Íslendingum almennt. Elliheimili 50-55 ára og 35 stunda hámarks vinnuvika.


mbl.is Taugastríð Geirs og Ingibjargar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vægt til orða tekið en viðurkenning á sök.

 Í svari við fyrirspurn úr sal sagði Bjarni að bankahrunið væri ekki hægt að rekja að fullu til aðildar íslands að EES, heldur hafi Íslendingar sjálfir farið óvarlega, ekki síst stjórnendur bankanna. Hann viðurkenndi einnig fram að stjórnvöld hefðu að einhverju leyti brugðist í eftirlitinu með þeim.

Nettó landsframleiðsla á nýfæddan íslending er um 500.000 kr. á mánuði. Er ekki talin fram svört framleiðsla og heimilisvinna.  Heimsmet í tekjum og til skammar hvers ójafnt tækifærunum er skipt.

Þeir sem eru í forystu á Íslandi eiga að hafa greind nú þegar til að hafna ESB innlimun og mætti það koma skýrar fram í málflutningi þeirra. Kjósendur með sömu greind gætu álitið þá fífl.

Auðvitað munu allir vel upplýstir kjósendur hafna ESB og íslendingar eru almennt vel greindir þótt þeir margir séu illa upplýstir í áróðursherferð ESB-auðhringasinnanna síðustu ár.   

Niðurjöfnun eða ójafnari tekjuskipting innan ESB mun aldrei ná eyrum þeir sem vilja ráða sínum málum sjálfir.


mbl.is Flokksforystan fái opið umboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með því hafi eigið fé bankanna verið þurrkað upp

Sjá grein í Fréttablaðinu Sunnudag

Ávinningurinn af því að færa hlutabréfakaup í slík félög er aðallega að takmarka á persónulega ábyrgð eigendanna, segir Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta.

Eignarhaldsfélög voru um 1.150 talsins í lok árs 2004, en eru nú ríflega 3.300. Fjöldinn hefur tæplega þrefaldast á fjórum árum.

Afar lítill skattalegur ávinningur er af því að stofna eignarhaldsfélög, í stað þess að sýsla með hlutabréf á eigin kennitölu, segir Vilhjálmur. Ekki sé heldur mikil þörf á því að stofna slík félög til að halda yfirsýn yfir hlutabréfaeign. Slíka yfirsýn geti menn fengið með einfaldari hætti með því að stofna vörslureikning í einhverjum af bönkunum.

Um þriðjungur af útlánum viðskiptabankanna voru til hlutafjárkaupa eignarhaldsfélga, segir Vilhjálmur. Með því hafi eigið fé bankanna verið þurrkað upp.

Hann segir þó varla við stjórnvöld að sakast, það hafi átt að vera bankanna að passa upp á sjálfa sig. Þeir hafi haldið áfram að lána eignarhaldsfélögum fyrir hlutabréfum, með veði í bréfunum. Afleiðingarnar geti allir séð eftir hrun bankakerfisins.

 

Bankarnir of litlir fyrir keðjuhringanna. Eigiðfé banka er fjöregg hans. Það má aldrei minnka. Í þessu tilviki er eignaupptöku að ræða sem hefur skaðað þjóðarhagsmuni. Boltinn hjá Dómsmálaráðherra. 


Trú í stað mats á raunverulegum staðreyndum?

Bjarni Ármann játar óábyrgan bankarekstur sem byggir á því að hagnast persónulega en reka bankann á skjön við allan ábyrgan hefðbundinn bankarekstur,  glópaáhætta höfð að leiðarljósi en langtímasjónarmið og kröfur innlánseigenda  máttu éta það sem úti fraus.

ESB eða ESS inngangurinn til hruns og versnandi lífskjara.

Ísland, sem bjó við takmarkað frelsi í viðskiptum og lokað hagkerfi stærstan hluta 20 aldarinnar, opnaðist skyndilega með EES samningnum. Þetta greiddi leið okkar inn á alþjóðamarkaðinn og við gripum tækifærið.

Algjört vanhæfi að þarna má segja að prestur hefði staðið sig betur

Þar undanskil ég ekki sjálfan mig og á jafnt við trú mína á krónuna, uppbyggingu launakerfis sem fór úr böndunum og hjarðhegðun sem leiddi til útlánaþenslu.

 

Við: það er innrásar eða græðgisútrásar kennitölurnar. Mistök er í lagi þegar um börn er að ræða, hæft fólk er valið í ábyrgðar mikill störf og laun í samræmi til að fyrirbyggja mistök. Bankar gera aldrei mistök.  Launin blekktu hluthafa sem sannanlega voru hafðir að leiksoppum. Tilgangurinn helgar meðalið.

Þar gerðum við mistök í því að byggja upp of stórt kerfi á of skömmum tíma, reiða okkur á lítinn gjaldmiðil og peningamálastefnu sem ekki gat gengið til lengdar í heimi alþjóðaviðskipta. Við létum einnig glepjast af hraða og skammtímaárangri og misstum þar með sjónar á langtímahagsmunum og gildum samfélagsins.

 

Grein Bjarna í Fréttablaðinu.


ESS regluverkið?

Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir að flókið eignarhald félaga geti skapað vandkvæði við eftirlit. Það dragi úr gegnsæi og flæki stjórnsýslulega meðferð mála. Samkeppniseftirlitið, líkt og aðrar eftirlitsstofnanir, hafi þurft í ýmsum málum að grafast fyrir um eignarhald félaga. Í flestum tilvikum hafi stofnunin komist að niðurstöðu um raunverulegt eignarhald, en þetta hafi krafist fyrirspurna og eftirgrennslana. 

Hvað hefur fjármálaeftirlitið verið að gera undanfarin ár. Íslenska þjóðin stendur ekki undir því að borga skatta fyrir óreiðubókhaldsfyrirtæki. Til að hér sé stunduð heiðarleg markaðs samkeppni verða nauðsynleg skilyrði að sjálfsögðu að vera uppfyllt.

Það er ekki hægt að afsaka þessa óreiðu undir fjármálaráðuneytinu með tilvísun í það að við höfum nánast tekið upp allt regluverk ESB með ESS. Íslendingar verða að sníða sínu dvergefnahagsríki stakk eftir vesti og hafa sín lög og reglur sem henta okkur best.

Tekjuskattar einstaklinga hér er í öfugu hlutfalli við hæfni Fjármálaráðuneytisins. Allof miklir á Íslandi.


mbl.is Rekja eigendaflækjur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

6 millur nettó á mann

Það þarf ekki að væsa um nýfæddan Íslending ef nettó tekjur landsframleiðslu, Evra sé 170 kr., eru um 500.000 kr. á mánuði. Það er augljóst að lámarkslaun ættu að fara saman með lámarksframleiðslu einstaklings. Eftirfarandi launskattsþrepa tafla gæti...

Útrásarfylkingin

Hvernig getur innlimun í ESB verið aðalvandamál 98% íslensku þjóðarinnar. Er ekki greiðsluþrotið eða skammtíma efnahagshrun í Kjölfar ESS, innrásar og græðgi óforsjálni með tilheyrandi atvinnuleysi og tekjumissi almennings það sem þarf að eiga alla...

Nú er það svart

Í dag birtu Samtök Atvinnulífsins einnig könnun - sú var um mat ráðamanna í atvinnulífinu á stöðu fyrirtækja. Í byrjun desember tölu 99% þeirra að aðstæður í efnahagslífinu væru slæmar. Enginn taldi aðstæðurnar góðar. Ráðningaráform á næstu sex mánuðum...

Íslenska þjóðin er ekki ábyrg

98% íslensku þjóðarinnar er ekki ábyrg fyrir skuldum [t.d. ávöxtunarloforðum] íslenskra einkabanka og hafa stjórnvöld ekki umboð þjóðarinnar til greiða upp skuldirnar fyrir þær kennitölur sem báru ábyrgðina. Ábyrgðarlaus útlánastefna [skiptir ekki máli...

Erlendir ofurauðhringir?

Endurskoðunarfyrirtækið Price Waterhouse Coopers rannsakaði Kaupþing, Deloitte Landsbankann og Ernst&Young Glitni. Rannsóknin á Glitni var upphaflega á höndum KPMG sem sagði sig frá rannsókninni í desember. Fjórir stærstu með margvíslega...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 55172

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband