Færsluflokkur: Siðferði

Nú skal ganga að gúngunum

Batnandi manni er best að lifa. Bjarni er sparað þjóðinni mikinn tíma varla þarf að bíða til loka nóvember [eftir meintri rannsókn] eftir að gengið verði í málin. Það er ekki hægt að draga orð Bjarna Ármannssonar í efa, til þess er hann of greindur. Þá er hægt að fyrirgefa þeim sem iðrast og til þess höfum við dómstóla. 
mbl.is Endurgreiddi 370 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með því hafi eigið fé bankanna verið þurrkað upp

Sjá grein í Fréttablaðinu Sunnudag

Ávinningurinn af því að færa hlutabréfakaup í slík félög er aðallega að takmarka á persónulega ábyrgð eigendanna, segir Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta.

Eignarhaldsfélög voru um 1.150 talsins í lok árs 2004, en eru nú ríflega 3.300. Fjöldinn hefur tæplega þrefaldast á fjórum árum.

Afar lítill skattalegur ávinningur er af því að stofna eignarhaldsfélög, í stað þess að sýsla með hlutabréf á eigin kennitölu, segir Vilhjálmur. Ekki sé heldur mikil þörf á því að stofna slík félög til að halda yfirsýn yfir hlutabréfaeign. Slíka yfirsýn geti menn fengið með einfaldari hætti með því að stofna vörslureikning í einhverjum af bönkunum.

Um þriðjungur af útlánum viðskiptabankanna voru til hlutafjárkaupa eignarhaldsfélga, segir Vilhjálmur. Með því hafi eigið fé bankanna verið þurrkað upp.

Hann segir þó varla við stjórnvöld að sakast, það hafi átt að vera bankanna að passa upp á sjálfa sig. Þeir hafi haldið áfram að lána eignarhaldsfélögum fyrir hlutabréfum, með veði í bréfunum. Afleiðingarnar geti allir séð eftir hrun bankakerfisins.

 

Bankarnir of litlir fyrir keðjuhringanna. Eigiðfé banka er fjöregg hans. Það má aldrei minnka. Í þessu tilviki er eignaupptöku að ræða sem hefur skaðað þjóðarhagsmuni. Boltinn hjá Dómsmálaráðherra. 


6 millur nettó á mann

Það þarf ekki að væsa um nýfæddan Íslending ef nettó tekjur landsframleiðslu, Evra sé 170 kr., eru um 500.000 kr. á mánuði.

Það er augljóst að lámarkslaun ættu að fara saman með lámarksframleiðslu einstaklings. Eftirfarandi  launskattsþrepa tafla gæti skapað stöðuga og réttláta launaskiptingu atvinnutekna. Ég er á móti persónuafslætti vegna þess að allir eiga að sjá sér sóma í því að borga í lámarks samneyslu. Í öðrulagi getur hann túlkast sem sem ríkisstuðningur við aumingjarekstur.

Lámarkslaun eða atvinnuleysisbætur 200.000 kr.

 Að sjálfsögðu á arður af eiginlegri rekstrastarfsemi fyrirtækja að vera skattfrjáls sem og innstæður Íslendinga í Íslenskum bönkum sem hluti af þjóðarsparnaði.

 

  

Brúttó LaunSkattur Nettó Laun
      
200.000 10%20.000 180.000
      
300.000 15%45.000 255.000
      
400.000 20%80.000 320.000
      
500.000 25%125.000 375.000
      
600.000 30%180.000 420.000
      
700.000 35%245.000 455.000
      
800.000 40%320.000 480.000
      
900.000 45%405.000 495.000
      
1.000.000 50%500.000 500.000
      
1.200.000 55%660.000 540.000
      
1.300.000 60%780.000 520.000

 

Starfsmannaskattar og aðgangsgjöld að mörkuðum geta verið grunntekjustofnar ríkis og sveitarfélaga.

Of há laun vegna atvinnu fárra sljóvga dómgreind  þeirra [halda að þeir séu ósnertanlegir] auka á spillingu og minnka útborgaðan arð fyrirtækja til framtíðar.

 


mbl.is Ísland áfram í efstu deild þjóða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útrásarfylkingin

Hvernig getur innlimun í ESB verið aðalvandamál 98% íslensku þjóðarinnar. Er ekki greiðsluþrotið eða skammtíma efnahagshrun í Kjölfar ESS, innrásar og græðgi óforsjálni með tilheyrandi atvinnuleysi og tekjumissi almennings  það sem þarf að eiga alla athygli.

Borgarnesræðan ásamt fleirum táknrænum tilburðum gerir hún fylkingunni stætt að vera í ríkisstjórn meðan leyndir þættir hrunsins eru rannsakaðir?

Í stöðunni í dag er þetta ekki spurning um fjölda stjórnarþingmanna heldur um gæði meirihluta á þingi.  Allt er betra en tækifærissinnaðar fylkingar í dag.

Í framtíðinni er upptaka sterkasta gjaldmiðilsins Dollars ásamt áherslum á nánari tengslum við NAFTA og Grænland, Færeyjar og Noreg í myndinni ásamt ASÍU og AFRÍKU.  Ennfremur er endurskoðun á ESS nauðsynleg sem fyrst: samanber að við höfum nánast tekið upp allt regluverk Beaurok-ratanna í óþökk við meirihluta þjóðarinnar. Auðlindir Íslands í sjó og á landi svo sem orka og sjávarfang eiga að vera sameign þjóðarinnar en ekki í einkaeign [nema þá í litlu mæli svo sem hlunnindi heimajarðar].


mbl.is ESB aðeins átylla fyrir stjórnarslitum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er það svart

Í dag birtu Samtök Atvinnulífsins einnig könnun - sú var um mat ráðamanna í atvinnulífinu á stöðu fyrirtækja. Í byrjun desember tölu 99% þeirra að aðstæður í efnahagslífinu væru slæmar. Enginn taldi aðstæðurnar góðar.

Ráðningaráform á næstu sex mánuðum eru jafnframt í sögulegu lágmarki. Aðeins tæplega 8% fyrirtækjanna gera ráð fyrir að fjölga hjá sér starfsfólki á næstu sex mánuðum, en þau fyrirtæki eru einkum í sjávarútvegi. Tæplega fjögur af hverjum tíu fyrirtækjum telja að starfsmannafjöldinn verði óbreyttur en röskur helmingur telur að fækka þurfi starfsfólki hjá fyrirtækjunum.

Þjóðin er venjulega ekki nógu svartsýn svo allt bendir til að útlitið sé mun svartara ef eitthvað er. 

Vonandi verður ekki skuldum einkaaðila ekki velt yfir á sársaklausa þjóðina. Svartsýni getur nefnilega verið í samræmi við óréttlæti. 


mbl.is Íslendingar aldrei verið svartsýnni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattar á innistæður skila slatta.

Síðast þegar ég gáði voru vextir allra innlánsreikninga [líka gjaldeyris], að undanskildum ofurupphæðum eða verðbólgutryggðum bundum í 3 ár, neikvæðir það er höfuðstólinn rýrnaði. Samt sem áður eru 10% skattar af skertri verbólgutryggingu höfuðstóls [innistæðunnar]. Það má því segja að Íslenskir Bankar og skatturinn græði á því þegar þegar Íslendingar reyna að spara. Borga inn á öll verðtryggðlán er besta sparnaðarleiðinn í augnblikinu.

Almenningur þarf að eiga sína eigin ríkisstjórn og banka í framtíðinni það er augljóst. Það augljóst að þær íslensku kennitölur sem eiga sameiginlega hagsmuni með ESB-auðhringnum eru mjög fáar og alls ekki treystandi fyrir hagsmunum 98% þjóðarinnar.

Gleymum ekki að ESS kynslóðin sú sem var alin upp við regluverkið er varla andlega eða líkamlega mótuð til að ganga undir þjóðarsátt [sérstakur Íslenskur undirbúningur er nauðsynlegur]


mbl.is Vextir 22% af skattfé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er maðurinn að fara?

Þó er rétt að árétta að skylda forsetans hefur í vaxandi mæli verið að veita íslenskum hagsmunum, vísindum og listum brautargengi í veröldinni, leggja lið á mörgum sviðum. Það var þáttur í kjöri mínu, umboðinu sem þjóðin veitti mér í sérhverjum kosningum

Nýársávarp forseta Íslands

Starfsskyldur embættis Forseta Íslends eru vel skilgreindar samkvæmt stjórnarskrá og er þessi ekki þar á meðal. Ég tel að skyldum hans hafi vísvitandi verið stillt í hóf til að forsetinn gerðist ekki of gírugur til launa.

Hinsvegar skiptir þessi játning mestu máli.

Á liðnum árum hafa margir gert mistök, stór og smá, og það er áríðandi að hver og einn leiti þeirra og viðurkenni, dragi af þeim lærdóma. Það hef ég reynt að gera, meta heiðarlega hvernig ég gekk of langt í málflutningi og liðsinni við starfsemi íslenskra banka og fjármálafyrirtækja erlendis, fundið hve áríðandi er að gaumgæfa betur gagnrýnisraddir og grasrótina, að efinn verður ætíð að vera með í för, einkum þegar hætt er við að kappið skyggi á forsjána; mikilvægt að muna þann gamla sannleik að hin raunverulegu verðmæti eru jafnan traustari en pappírsgróði.

Ég tel að Forseti Íslands hver sem er hafi ekki sjálfdæmi þegar hann gengur of langt. Það er líka gert ráð fyrir því að slíkt geti gerst í sömu starfsskrá.


Ódýrara verð á borðvíni og öli.

Greinin ber fyrirsögnina: Ísland á hálfvirði fyrir þá sem leita tilboða. Þar segir að landið sé nú kallað Halfpriceland eftir að hrun bankanna og gengisfall krónunnar gerðu það að verkum að verðlag hér á landi, sem hafi verið stjarnfræðilegt, varð jarðbundið.

 

Nú væri skynsamlegt að bjóða almenna erlenda gjaldeyris innflytjendur velkomna og lækka álögur á borðvíni og bjór. Ekki veitir af að fá sem flesta ánægða til frambúðar.  Einnig mætti miða verð á vínveitingaleyfum við samþykkta verðskrá á útseldu víni ár frá ári. Einnig ættu verðlistar alltaf  að vera sýnilegir neytendum á sem aðgengislegastan hátt.


mbl.is Ísland á hálfvirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnaðarmenn samir við sig

Sjálfstæðisflokkurinn var hið leiðandi pólitíska afl í stofnun lýðveldis á Íslandi, eins og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra rifjaði upp í athyglisverðri ræðu á frægu þingi Sambands ungra Sjálfstæðismanna á Egilsstöðum haustið 1973. Nú er það gleymt og grafið að í aðdraganda lýðveldisstofnunar á Íslandi voru ákveðin þjóðfélagsöfl, sem mæltu gegn stofnun lýðveldis á þeim tíma. Þá andstöðu var að finna í röðum jafnaðarmanna, en það er önnur saga.

Grein Styrmis

Enga niðurjöfnun. Skrifræði og ráðstjórn er ekki vísir á almennar hátekjur. Það er forsjárhyggjubandalag BeauroK-rata öðrum jafnari. Með upptöku ESS fengu við að kynnast nánast öllum göllum þess. Innlimun er formleg yfirlýsing um afsal á auðlindum Íslands í ljósi rétti erlendra að eignast þær.  Þegar eigendurnir eru svo allir orðnir jafnari þeim íslensku þá þarf ekki að spyrja um hvort íslensk stjónvöld framtíðarinnar fá nokkuru breytt um ákvarðanir teknar í Bruselles af verndurum auðhringanna þar.


mbl.is Ísland áhrifalaus útkjálki?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verðbólgan hjá þeim sem minna meiga sín.

 Ávextir hækkuðu í verði um 61,7%. Mest hafa epli hækkað eða um 80,2%. Hveiti hækkaði um 62,1%, hrísgrjón um 49,2%, en mest hækkaði þó pasta eða um 99,9%.

Hvernig lítur verðbólga út hjá sem eiga að framfleytja sér á bótum. 


mbl.is Pasta hækkaði um 100% á árinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband