Færsluflokkur: Neytendamarkaður
2.1.2009 | 03:05
Hvað er maðurinn að fara?
Þó er rétt að árétta að skylda forsetans hefur í vaxandi mæli verið að veita íslenskum hagsmunum, vísindum og listum brautargengi í veröldinni, leggja lið á mörgum sviðum. Það var þáttur í kjöri mínu, umboðinu sem þjóðin veitti mér í sérhverjum kosningum
Starfsskyldur embættis Forseta Íslends eru vel skilgreindar samkvæmt stjórnarskrá og er þessi ekki þar á meðal. Ég tel að skyldum hans hafi vísvitandi verið stillt í hóf til að forsetinn gerðist ekki of gírugur til launa.
Hinsvegar skiptir þessi játning mestu máli.
Á liðnum árum hafa margir gert mistök, stór og smá, og það er áríðandi að hver og einn leiti þeirra og viðurkenni, dragi af þeim lærdóma. Það hef ég reynt að gera, meta heiðarlega hvernig ég gekk of langt í málflutningi og liðsinni við starfsemi íslenskra banka og fjármálafyrirtækja erlendis, fundið hve áríðandi er að gaumgæfa betur gagnrýnisraddir og grasrótina, að efinn verður ætíð að vera með í för, einkum þegar hætt er við að kappið skyggi á forsjána; mikilvægt að muna þann gamla sannleik að hin raunverulegu verðmæti eru jafnan traustari en pappírsgróði.
Ég tel að Forseti Íslands hver sem er hafi ekki sjálfdæmi þegar hann gengur of langt. Það er líka gert ráð fyrir því að slíkt geti gerst í sömu starfsskrá.
Neytendamarkaður | Breytt 4.1.2009 kl. 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.12.2008 | 02:00
98% þjóðarinnar
98% þjóðarinnar sem erum hvorki táknræn eða á ofurlaunum verðum að gefa núverandi stjórnmála- og dómsmála stétt frí næstu 8 árin. Stofna bráðabirgða þjóðarflokk til að hreinsa til og taka upp gamlar reglur og setja nýjar sem tryggir, okkar allra, velferð til framtíðar. Hagur heimilanna á Íslandi er ekki sá sami og alþjóða auðhringa eða þeirra eftirlitsstofnanna, upplýsingastofnanna eða endurskoðenda. Okkar hagur er að tryggja okkur almenn há laun, skilvirkt kerfi þar sem leyndin á ekki heima utan veggja heimilisins. Allir skulu jafnir að lögum, sem eiga að endurspegla bestu vestrænu siðferðisgildi á öllum tímum. Þegar gefið var frelsi til trúbragðaiðkunar gleymist að taka boðorðin upp í lögin. Því miður fyrir okkur sem erum ekki táknræn.
![]() |
Annmarkar á skipun dómara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamarkaður | Breytt 4.1.2009 kl. 23:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2008 | 16:24
Efnahagsstríð eða heimskreppa
Baráttan um auðlindirnar.
Alltaf þrengir meir og meir að gömlu Evrópu nýlenduveldunum, hvers íbúar viðhalda sér mest nú til dags með fólki úr Litlu Asíu, og ekki trúi ég því að gömlu nýlendurnar sakni þeirra mikið.
Landsframleiðsla ESB verður aldrei meiri en þær auðlindir [orka og hráefni] sem beauroK-ratarnir ráða yfir það vita ESB fjárfestarnir [erlendu fjármagnsauðhringarnir] betur öðrum fremur. Sjálf er ESB að auðlinda þroti komin og háð Rússum um orku frá austri og vestri, samanber ítök Rússa í fyrrum Olíu og gas fyrirtækjum Spánar.
Ameríka [USA] og ASÍA [Kína] með auðlinda ítökum í Afríku og Litlu Asíu er markaður sem ESB Rússlands blokkin fer hallloka fyrir.
Núna þegar efnahagstríðið [heimskreppan] er að stíga sín fyrstu spor fyrir alvöru, er tími fyrir Íslendinga að endurheimta fullræði sitt og sjálfræði á öllu sviðum. Endurskoðun eða uppsögn á ESS, skrifræðinu og regluverkinu sem þröngvað hefur verið upp á þjóðin síðustu 20 ár, er það sem þarf til. Ísland eitt og sér er dvergefnahagssvæði sem þrífst ekki á innkomu erlendra fjármagnsauðhringa [fjárfesta], fákeppni, innlendum keðjuauðhringum, auðlindum í einkaeign, verðbréfahöll, braski með krónubréf, opnu landamærum, ofurlaunum og samsöfnun valds [eignarhalds] á fárra hendur.
Á Íslandi dafna lítil [á alþjóðamælikvarða] einkafyrirtæki, rekin á arðbærum eiginlegum grunni, það er reksturinn borgar sig sjálfur til langframa. Hæstu þjóðartekjur í heimi og lítill íbúafjöldi leyfa almenn hátekjulaun sem skila sér í neyslu gæðavara og gæðaþjónustu á öllum sviðum: hagvöxtur almennings.
Öll leynd er skömm því skýrar leikreglur á öllum mörkuðum er nauðsynlegar til að tryggja heilbrigða samkeppni. T.d. um opnunartíma of vinnutíma hámörk í samræmi við þann markað sem við á. Eins eiga fyrirtæki í eiginlegum rekstri að láta af lána viðskiptum og eiga þau alfarið að vera hjá velreknum fjármálastofnunum. Öll verð á vöru og þjónustu eiga að vera uppi á borðum og miðast við afhendingu í húsi framleiðenda. Lánskostnaður og sendingakostnaður sé allaf sundurskilinn á kosta kaupenda eða þess er neytir. Það má líkja frjálsri heiðarlegri samkeppni við handbolta eða fótbolta þeir hæfustu eru inn á og allir geta metið leikin þar sem engin leynd hvílir yfir skýrum reglum að flestra mati sanngjörnum. Þar sem samkeppni verður ekki komið við vegna smæðar þá getur verið betra að hafa eitt þjónustu fyrirtæki en fá [Fákeppni þegjandi samkomulag greindra aðila um skiptingu markaðarins].
Sterkasti gjaldmiðilinn Dollar tryggir aðgang að öllum heimsmörkuðum, mesta valið og minnstu áhættuna, almenn greind margra Íslendinga tryggir hámarks gróða. Samfélag þar sem almennar hátekjur ríkja eiga að beina spjótum sínum að minni en fleiri hátekjumörkuðum sem finnast meðal allra þjóða.
Íslenska fullvalda þjóðríkið geymist aldrei meðan það stendur upp úr og skarar fram úr. Íslendingur er hver sá sem virðir almennar reglur og siði á land og þjóðar á hverjum tíma. Nokkuð sem ég tel flesta almenna íbúa heimsins sækjast eftir en það eru takmörk [auðlindir] fyrir öllu.
![]() |
Flytja út bændur til Afríku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamarkaður | Breytt 4.1.2009 kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 20:17
Sókn og vörn
Í niðurlagi greinar sinar segir Jón Ásgeir að það hafi aldrei verið brýnna að hann beitti sér af fullu afli í því að styrkja stöðu fyrirtækja sinna og verja atvinnu þeirra sem þar starfa og þau verðmæti sem í þeim felist. Ég hyggst, segir hann, taka þátt í því starfi að endurreisa íslenskt atvinnulíf, ég hyggst taka þátt í því af fullri einurð og jafnvel svolitlu af þeirri harðdrægni sem ég hef tamið mér í viðskiptum, segir Jón Ásgeir Jóhannesson; þannig axli hann sína ábyrgð
Það mun rétt að Jón Ásgeir ber ekki ein sök á hruninu upp á sitt einsdæmi. Enda starfar hann í umboði eigenda sinna.
Að hans ábyrgð felist í því að hann hafi lagt mesta áherslu á sókn en minni á vörn efast enginn um.
Fyrirtæki hans eða keðjuhringa fjármálsamsteypan. Hverju sækist hann eftir? Í heilbrigðri markaðssamkeppni eru allir viðskiptavinir og "fair deal" er það sem gildir hvort, lykilinn að því sé harðdrægni þegar um lítil einkafyrirtæki er að ræða læt ég ósagt. Sókn er það tilvísun í offjárfestingar og vörn þýðari það forsjálni sem einkennir stöðugan ábyrgan rekstur. 400.000 miljónirnar [svipað og Jöklabréfin]: skuldir á Íslandi eða eiginfé sem mismunur 1200.000 - 900.000 milljóna, hefur það ekki rýrnað talsvert frá því fyrir mitt á árinu. 400.000 milljónar af 1200.000 milljónum eru 33 1/3 % . Svipað og almenn skerðing á launum ótáknrænna launþega [almennings].
![]() |
Jón Ásgeir tekur dóma nærri sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamarkaður | Breytt 4.7.2009 kl. 13:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.12.2008 | 19:17
Í alþjóðlegri kreppu
Heimsmarkaðsverð á gulli hefur hækkað undanfarið vegna ótta fjárfesta við verðbólgu. Hefur gullverð ekki verið hærra í tvo mánuði, en málmurinn hefur gjarnan verið álitinn örugg höfn fyrir fjárfesta í efnahagslegu fárviðri eins og nú geisar.
Í ljósi sögunnar þó hamstrar almenningur, í flestum löndum, heims gull þegar hann á von á löngu efnhagsstríði eða kreppu. Svo fjárfestar [löngu búnar að losa við bréf í smartvöru búðum sem og í lágvöru] hugsa sér gott til glóðarinnar þegar líður á heimskreppuna.
![]() |
Gull hækkar í verði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.12.2008 | 13:50
Pólitískt hitamál?
One thing that might have saved Icelandic capitalism was joining the euro. Appealing to national pride, Mr. Oddsson long resisted moves to join the European Union and adopt the common currency. Perhaps most crucially, joining the EU would have meant bureaucrats in Brussels would then regulate Iceland's use of its fishing stocks -- a political third rail in Iceland.
Einn hlutur sem hefði getað bjargað íslenska samkeppniskerfinu var að tengjast evru. Með tilvísun í þjóðarstolt, hefur Davíð Oddsson lengi staðið gegn allri viðleitni til að tengjast Evrópu Sambandinu og taka upp hinn almenna gjaldmiðil. Sennilega með örlagaríkustu afleiðingunum, hefði innganga in í Evrópusambandið þýtt að BeauroK-ratarnir í Bruxelles myndu þá stjórna nýtingu Íslands á þess fiskistofnum -- pólitískt hitamál á Íslandi [sem þolir ekki umræðu].
Hinsvegar ef Íslendingar hefðu haft sterkasta gjaldmiðilinn Dollar þá værum við ekki í vandræðum með Jöklabréf og hefðum þurft að fjármagna okkur með öðrum leiðum en krónubréfum. Það og enginn ESS-samningur hefði aldrei gert ofurblekkingartímabilið raunverulegt.
![]() |
Evran hefði dregið úr fallinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamarkaður | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.12.2008 | 19:16
Hagvöxtur heimilanna.
Hagvöxtur er eins og orðið segir vöxtur sem er mældur með tvenna hagsmuni að leiðarljósi í daglegri umræðu.
Vöxtur vergrar þjóðarframleiðslu eða þjóðartekna, í samræmi við framleiðslugetuna á viðmiðunartímabilinu, byggist á mælingum á heildarverðmæti allrar vöru og þjónustu sem þjóð framleiðir ári frá ári. Hér teljast tekjur útlendinga af eignum og vinnu á Íslendinga til þjóðartekna Íslendinga. En þjóðartekjur Íslendinga af eignum og vinnu erlendis teljast ekki til landsframleiðslu.
Vöxtur vergrar landsframleiðslu á mann er helsti mælikvarðinn á hagvöxt. OECD gefur út yfirlit yfir vöxt vergrar landsframleiðslu á mann fyrir aðildarríki sín og nokkur önnur lönd. Þar sem til dæmis tekjur útlendinga af eignum og vinnu á Íslandi teljast ekki til þjóðartekna Íslendinga en til landsframleiðslu Íslands. Á sama hátt teljast tekjur Íslendinga af eignum og vinnu erlendis til þjóðartekna Íslendinga en ekki til landsframleiðslu Íslands.
Vísindavefurinn.
Rannsóknamiðstöð Íslands.
Hagur Íslenskra fjárfesta á Íslandi kemur betur út settur fram með Hagvexti þjóðarframleiðslu, á sama hátt þjónar Hagvöxtur landsframleiðslu Íslands erlendum fjárfestum [alþjóða auðhringum] betur.
Þegar verið er að vitna í gífurlegan hagvöxt í peningafátækum löndum sem áður vöru utan ESB gleymist oft að geta þess að hagvöxtur mælir ekki svarta vinnu, sjálfþurftarbúskap: fatagerð, matargerð, leiki og veislur, bruggun, matjurtarræktun, dýrahald, ... . ESB fjárfestar komu með fjármagn og hráefni í verksmiðjur. Heimavinna vinna fór svo að telja til hagvaxtar komin í verksmiðjurnar. Hagræðing átti svo að skila fjárfestunum ávöxtun og heimilunum meiri peninga í umferð. Auðlindirnar [hráefni í eigu landsvæðisins] það eru grundvöllur allrar framleiðslugetu við komandi landsvæðis til langframa. Auðlindasnauðari þjóðirnar eru jafn snauðar að því leyti.
Síðasta sjónhverfingin til að auka hagvöxt: framleiða endingarlitlar vörur úr ódýrum hráefnum undir merkjum tísku eru ekki að skilja sér, jú auðlindirnar [hráefnin] eru takmörkuð á mælikvarða mannfjölgunar og eftirspurnar heimsbyggðarinnar. Sérhver er sjálfum sér næstur.
Allir Íslendingar vita að þjóðartekjur þeirra og auðlindir eru með þeim mestu sem gerast á íbúa. Fjölgun íbúa þarf ekki að auka þær. Hinsvegar gera ekki allir sér grein fyrir að almennt eru Íslendingar greindir og því samfara handlagnir svo margt sem gert er fyrir heimilin nótulaust mælist ekki sem hagvöxtur.
Hagvöxtur heimilanna sem felast í hefðum hennar og siðum má ekki fórna á altari alþjóða auðhringa hagræðingar. Breyttar áherslur í innrætingu [menntun] til dæmis til að trúa á mátt sinn og megin til allra hluta gætu skilað heimilunum þeim hagvexti sem aldrei var mældur. Fjárfestar geta komið með hráefni og verksmiðjur en farið með þær og hráefnin annað jafn hratt eða hraðar. Íslendingar sem Dvergríki utan innlimunnar geta haldið áfram að vera tekjuhæsta þjóð í heimi við þurfum ekki niðurjöfnum. Áherslur á almennar hátekjur eða jafnari skiptingu kökunnar[auðlindanna] samfara áherslum um hámörkun almenns hagnaðar á öllum sviðum getum við leyst í lýðræðislegum kosningum í fullvalda ríkinu Ísland.
Neytendamarkaður | Breytt 29.12.2008 kl. 05:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2008 | 22:27
Ódýrara verð á borðvíni og öli.
Greinin ber fyrirsögnina: Ísland á hálfvirði fyrir þá sem leita tilboða. Þar segir að landið sé nú kallað Halfpriceland eftir að hrun bankanna og gengisfall krónunnar gerðu það að verkum að verðlag hér á landi, sem hafi verið stjarnfræðilegt, varð jarðbundið.
Nú væri skynsamlegt að bjóða almenna erlenda gjaldeyris innflytjendur velkomna og lækka álögur á borðvíni og bjór. Ekki veitir af að fá sem flesta ánægða til frambúðar. Einnig mætti miða verð á vínveitingaleyfum við samþykkta verðskrá á útseldu víni ár frá ári. Einnig ættu verðlistar alltaf að vera sýnilegir neytendum á sem aðgengislegastan hátt.
![]() |
Ísland á hálfvirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamarkaður | Breytt 29.12.2008 kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.12.2008 | 20:32
Upptaka Dollars strax
Friðrik sagði að það hafi verið gæfa sjávarútvegsins að njóta ekki ríkisstyrkja og það hafi skipt sköpum. Hann sagði að það væru blikur á lofti um fjármögnun sjávarútvegsfyrirtækja en hann sagðist ekki sjá það fyrir sér að það myndi nokkurn tímann gerast aftur að sjávarútvegurinn yrði upp á náð og miskunn ríkisins kominn.
Sterkur gjaldmiðill styður sjálfstæða arðbæra útvegsstefnu. Engar meiri gengisfellingar, óhagstæðar lánafyrirgreiðslur eða afskriftir lána. Dollar strax og stefnumótun til framtíðar borgar sig. Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn.
![]() |
Aldrei aftur í faðm ríkisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamarkaður | Breytt 29.12.2008 kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.12.2008 | 19:07
49% landsmanna undir meðaltekjum?
Geir sagði ríkissjóð hafa orðið fyrir miklu tekjufalli og útgjaldaaukning mikil vegna atvinnuleysisbóta og fleiri útgjalda. Þetta er verið að reyna að brúa," sagði Geir á Stöð 2.
Skerðing framfærslubóta þessi kostnaðarauki í viðbót er það ekki táknrænt?
![]() |
Standa undir gjaldtöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamarkaður | Breytt 29.12.2008 kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Júlíus Björnsson
Tenglar
EU bálkaða lagasafnið
- EU STJÓRNARSKRÁRDRÖGIN Efnisyfirlit
- SAMNINGURINN UM EVRÓPSKU SAMEININGUNA Grein 1 til og með grein 55
- SAMNINGURINN UM STARFSEMI EVRÓPSKU SAMEININGARINNAR I Grein 1 til og með grein 173
- SAMNINGURINN UM STARFSEMI EVRÓPSKU SAMEININGARINNAR II Grein 174 til og með grein 358
- FRUMSKJÖL 1-6 Viðaukar við Samninganna I
- FRUMSKJÖL 7-9 Viðaukar við Samninganna II
- FRUMSKJÖL 10-37 Viðaukar við Samninganna III
- Fylgiskjöl 1-2 Fylgiskjöl við Samninganna
- TILSKIPUN 94/19/ES EVRÓPSKA ÞINGSINS OG RÁÐSINS þann 30. maí 1994 Til að koma í veg fyrir hrun allra Banka á sama markaði
- Umsækjenda lönd um aðild að Evrópsku Sameiningunni. Lánarfyrirgreiðslur, eftirspurn eftir krónubréfum í samræmi við acquis.
Mínir tenglar
- Alþjóðleg samantekt um lögleg jafngreiðslu/íbúðalán Mortgage, Hypothec, Annuitet, Negam, jafgreiðsla, veðlán
- Irving Fisher skýrir verðtryggingu best og aðra vísa:Indexes Allir sem vilja skilja grunn fjármála skilja meistarann
- Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands Tók gildi 17. júní 1944.
- Leiðrétt verðtryggingar vísitala. Sjá og flokkinn Íbúðarvísitala
- Falið Forsetavald Stjórnmálamenn fari eftir stjórnarskrá.
- Í upphafi skyldi ábyrgur endinn skoða Hrun húsbréfakerfisins var öllun ábyrgu ljóst 2002
- IMF eða AGS AGS sjá Publication Country Report
- Meinhornið Mannvins rök til að hlusta á.
Góðir punktar
- Valdar greinar um afturhvarf til miðalda á Íslandi Grunnur til að skilja hrunið
- Páll Vilhjálmsson Höfundur er blaðamaður. Ekki-Baugsmiðill
- G. Tómas Gunnarsson Bjórá 49
- Kastljós Skoðar ræturnar
- Schweizerische Volkspartei SVP Freipass für alle? NEIN zur Personenfreizügigkeit!
- United Kingdom Independence Party Freedom to choose Bretar vilja snúa baki við ESB
- Reform Party : Enduruppbygging til reisnar. Bendir á vandamál hliðstæð Íslenskum
ESB
- Treaty of Lisbon Council of the European Union
- Ísland síðustu 20 ár. Áhrif ES regluverksins? Menningararfleið Sameinaðar [meginlands] Evróu
- Seðlabanki Íslands 330.000 íbúar hafa þeir efni á þessu?
- Kauphöll Íslands Sjá og : omxnordicexchange.com/
- Iceland and the IMF Þessir með hlutlausa sjónarhornið AGS
- Traktat Om En Forfatning For Europa Treaty on a Constitution for Europe
- Danmarks Riges Grundlov Grunnreglur Danska ríkisins: Stjórnarskrá
- Stjórnarskrá Frakklands CONSTITUTION DE LA CINQUIEME REPUBLIQUE
- European Commission Evrópska Umboðið þeirra opinbera hlið
Málmyndarfræði
- Aelius Donatus rómverskur málmyndarsagnari á 4.öld Einn af heimildar mönnun Ólafs Þórðasonar hvítaskálds.
- Priscianus Caesariensis (fl. 500 AD) Latnesku málmyndarsagnari Annar af heimildarmönnum Ólafs hvítaskálds
- Ólafur Þórðarson hvítaskáld og rúnafræðingur(um 1210 1259) Samdi Grundvöll Málfræðinnar og Málskrúðsfræði
- Luca Pacioli 1446/7 -1517 Tvíhliða bókhald og grunninnrætingar forsendur hæfra ráðmanna.
- Quadrivum: fullnægand innrætting yfirstéttar manna lámarkskröfur til yfirstéttanna sem vilja hafa áhrif á jafningja
- Trivium: fyrir þjónanna. Nauðsynleg innræting fyrir meiriháttar menntun.
Nýjustu færslur
- Ríkisábyrgð
- Syndir feðranna koma niður á annarra manna börnum
- Mammon er Guðinn?
- EES: Samningur um Evrópskt Efnahagsvæði
- Íbúðafasteignaveðsverðvísir er það ekki málið?
- Íslenska glæpahúsnæðilánakerfið III!
- Íslenska glæpahúsnæðilánakerfið II!
- Íslenska glæpahúsnæðilánakerfið!
- Aldur og falið vald
- Sníða sér stak eftir vexti og hámarka virðisauka?
Bloggvinir
-
tilveran-i-esb
-
vild
-
kristinnsig
-
ea
-
siggith
-
einarsmaeli
-
vilhjalmurarnason
-
reykur
-
baravel
-
hannesgi
-
hlf
-
hallarut
-
gudbjornj
-
jonsullenberger
-
huldumenn
-
kristjan9
-
jon-o-vilhjalmsson
-
sigsaem
-
zumann
-
inhauth
-
alla
-
baldvinj
-
ragnar73
-
vala
-
noosus
-
halldorjonsson
-
hreinn23
-
gudjul
-
vidhorf
-
huxa
-
thorsteinnhelgi
-
krisjons
-
bjarnimax
-
gudmunduroli
-
isleifur
-
hvirfilbylur
-
sv11
-
baldher
-
jonmagnusson
-
gagnrynandi
-
krist
-
maggij
-
idda
-
morgunblogg
-
rynir
-
runirokk
-
summi
-
fullvalda
-
predikarinn
-
einarbb
-
nr123minskodun
-
valdimarjohannesson
-
amadeus
-
diesel
-
sibba
-
holmdish
-
gattin
-
eeelle
-
vefritid
-
thjodarheidur
-
minnhugur
-
svarthamar
Færsluflokkar
- Dægurmál
- Evrópumál
- Fjármál
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- íbúðarvísitala
- Kjaramál
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Neytendamarkaður
- Siðferði
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Trúmál og siðferði
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar