Færsluflokkur: Mannréttindi

Forherðing Siðspilltra.

Lítilsvirðing við lýðræðið. Samstaða um áframhaldandi viðreisn sérhagsmuna tækifærisinnanna. Gaman, Gaman. Stjórnin er ekki að bregðast við mestu heimskreppu síðari tíma að flestra manna mati. Hefur USA efni á því að bjarga Evrópu öðru sinni. Eiga Íslendingar samleið með fyrrverandi nýlendum [USA þar með talin] eða gömlum  harðstjórum [ESB yfirstéttinni] á sviði efnahagsmála heimilanna.


mbl.is Ekki stjórnarslit í augnablikinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB og Íslenskur Launagrundvöllur

Eins og ESS og þjóðarsátt [raunlækkun um 30% á vali]  lægstu stétta með upptöku OECD neysluverðvísitölu sem mælir meðaltekjur allra og skapar stöðugleika hvað varðar græðgi þeirra lægst launuðu, var fyrst stóra skrefið í langtíma innlimunarplönum ESB [kjarnans], má segja að nú sé upphaf skrefs tvö. Lækkun heildar launa efri stétta [aðallega með grisjun] til að skapa sama ESB stöðugleika þar. Gjaldeyrishöft í 10 ár og einbeitta sér að borga upp skuldir við erlenda fjármagnsfesta með aðferðum sem byggja einfaldleikja raunverulegar tekjuöflunar. [Fiskur og kjöt].

Vergar [nettó]  þjóðartekjur landsframleiðslu Íslands eru brúttó þjóðartekjur landsframleiðslu þjóðarinnar að frá dregnu hráefnis og orkukostnaði og ekki síst heildar launakostanaði sem hámarkast við stöðugleika heildar [meðal, jafnaðar] neyslu launþeganna sem tengjast framleiðslunni.  OECD neysluverðsvísitalan er besti mælikvarði á þann jafnaðarstöðugleika. Frá sjónarmiði erlendu fjárfestanna er best að halda öllum kostnaði við landsframleiðslu í lámarki þannig að vergu tekjurnar verði sem mestar, því þær eru mælikvarði á greiðsluhæfni, ávöxtunargetu svæðisins [þjóðarinnar]. Sem endar í vösum þeirra sem ávaxta þegar upp er staðið.  Þó það sé ekki algild regla hér innanlands að hámarka gróða hverrar greinar eða stéttar, þá hygg ég að þegar um alþjóðabandalög auðhringa sé að ræða sé engin undantekning á þeirri sjálfsögðu reglu, hvað varðar  þeirra skjólstæðinga.

 Dollar er eini arðbæri möguleikinn gegn gjaldeyris [viðskipta] höftum næstu ára. Uppsögn ESS lækkar kostnað [lækkar glæpatíðni og fjármagns útflutning m.a.]og eykur val á sama hátt og niðurskurður fjármálageirans eða fjármálakostnaðarins. Bara kostnaður við að halda utan um OECD neyslu vísitöluna  hér á landi getið rekið eina sjúkrastofnun.

Verkföll eru óþörf í þjóðfélagi þar sem góð lífskjör lægstu stéttar eru grunnforsendan og allar leikreglur gagnsæjar og auðskildar.  Hinsvegar geta aðilar OECD kostað sínar mælingar sjálfir. Laun  sem eru mannsæmandi þeim tekjulægsta lægsta  [tryggja að geti tekið hóflegt lán með 2% ávöxtunar kröfu] er auðvelt að reikna út frá einföldum lista [byggðum á heilbrigði og sparnaði]. Öll hærri laun sér heilbrigður samkeppnismarkaður um að leysa af sjálfum sér.

Aðrar tekjur af því að fjárfesta í raunverlegu atvinnurekstri og sparnaði eiga að vera skattfrjálsar því öll fórn á skammtíma sjónarmiðum á ekki að refsa heldur umbuna. 

Dollar er framtíð þeirra sem byggja frelsi og mannréttindum. Framkvæma í samræmi við það sem þeir byggja á.  ESB er minnisvarði um óréttlæti fortíðarinnar.

Ranghugmynd

Að sögn Bailes eru margir haldnir þeirri ranghugmynd að aðild að ESB þýði sjálfkrafa andstaða gegn NATO og Bandaríkjunum. Minnti hún á að 21 af 27 aðildarríkjum ESB væru líka aðilar að NATO.

 

Upptaka dollars og standa utan einokunarefnahagsbandalaga er langarðbærasti kosturinn í stöðunni til langframa það þýðir alls ekki sjálfkrafa afstaða gegn vinum okkar í Evrópu. Heldur að við viljum eiga val til þess að eiga viðskipti við allar þjóðir heims án litarháttar.

Þetta er dæmi um tvíhyggju alþjóða krata: segja allt og meina ekkert. ESB virðist sem sem sagt skipta sér af því hvaða árangurssambönd innlimuð ESB ríki hafa við önnur utan ESB að öllu leyti. ESB bandalaga BeuroK-ratar yfirstéttar, öll hvít á toppnum, skrifræðis, ráðstjórnar, undir hæl Rússa, geld að eigin auðlindum, með vaxandi  atvinnuleysi og fallandi vergar tekjur heildarlandsframleiðslu. Nei takk. Niðurjöfnum. Nei takk.  Meðal jafnaðar laun Nei takk

  Ísland fyrir Íslendinga og vini þeirra, um allan heim, af öllum litarháttum og trúarbrögðum. Stétt með stétt. Tækifæri til að græða og velja sér vini.


mbl.is Samstarf Norðurlanda gæti eflst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hægri og Vinstri

Hægri og vinstri hafa enga merkingu í augum kjósenda nú á dögum. Fyrir mér er Hægri hægara, [stöðuleiki, Val sem er auðvelt] en vinstri flóknara [fjölbreytileiki og Val]. ESB er til vinstri [hægri megin við Rússland]. Stjórnarandstaða Breska heimsveldisins sat vinstra megin. USA er til hægri [vinstra megin við Kína]. Þá norður er upp og litið er niður og til hliðar.  Sjálfstæðisflokkur er til hægri í Íslenskum stjórnmálum þó flestir séu sammála að hann væri til vinstri í þeim USA og Sviss. VG eru til vinstri Íslenskum stjórnmálum mest vegna þess að þeir eru alltaf í stjórnarandstöðu sér í lagi eftir að fylkingin sameinaðist "meintum" jafnaðarmönum: að meðaltali.

Flokkur sem byggir á Stétt með Stétt þar sem grunnstéttin [sú launlægsta] þarf ekki að kvarta. Flokkur sem byggir á frelsi allra einstaklinga til jafnra tækifæra til að láta gott af sér leiða í þága allra í samfélaginu á hverjum tíma. Flokkur sem byggir á frelsi einstaklinganna til frelsis á frjálsum samkeppnismörkuðum [22 tveir inná minnst á hverjum tíma] i þágu heildarinnar [neytenda]. Þar sem frelsið eru þeir rammar sem lög og reglur sem hafa að fornu fari byggt á vestrænum gildum og eru í samræmi við siði sem byggðust á heiðnum með kristilegu ívafi. Það er minn flokkur. Sem er öllum megin.  Sem byggir á hægri grunni og leyfir öll skoðanaskipti í allar áttir til vinstri. Ef hægri er stoðin eða stöngin þá er allt til vinstri við hana.

Ein stór markaður svo sem  ESB eða fáir er dæmi um Fákeppni sem leiðir til fullkomnunar stöðuleikans það er  stöðnunar. Staðnað vatn er vart drykkjar hæft. Vatnið er upphaf lífsins.

Hægri er miðja sem gefur valið til vinstri. Jörðin snýst í kringum sólu og er ekki flöt.

Hvort gamla Framsókn ætlar að innlimast í efnahagseinokunarbandalag Evrópu [gegn gömlu nýlendunum] og vera í stjórnarandstöðu veit ég ekki ennþá, í ljósi reynslunnar verður maður að bíða og sjá. Ég kýs þann flokk sem stendur mér næst hverju sinn ef ekki á borði þá í orði því orð eru til alls fyrst.


mbl.is Vill færa flokkinn frá hægri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kúgun

 

Hins vegar mælti hann sterklega gegn einhliða upptöku evru eða annarra gjaldmiðla. Það sagði hann fljótlegustu leiðina til að útiloka landið algerlega frá ESB-aðild. Slík upptaka yrði í algjöru trássi við Evrópusambandið, samninga þess og hugmyndafræði, og myndi vekja mikla reiði. Þar að auki hefði íslenskt bankakerfi engan lánveitanda til þrautavara í slíku fyrirkomulagi.

Við lifum á tímum netsins og góðra samgangna. Dollar er lykill að hátekjumörkuðunum. Það er best fyrir ESB að innlima hátekjuþjóðir [vergar tekjur landsframleiðslu miklar] á sama hátt er best fyrir dvergefnahagsríki að standa utan einokunarbandalaga og auka arðbærni útflutnings inn á þúsundir hátekjumarkaða um heim allann þar með talið hástéttarmarkaði innan einokunarbandalaga. Deila og drottna.  Ísland eru á kortinu vegna þess að er ekki innlimað innan ESB. Innlimað myndi það vera minna þekkt en Liechtenstein þar sem skattaparadísir eru ekki inn í framtíðinni og okkar tækifæri kemur ekki aftur á því sviði.


mbl.is Voru í raun án Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gordon Brown

Það er ekki allt vitlaust sem kemur frá honum: þ. e. útistandandi skuldir og eignir sem í reynd eru verðlausar. Hvernig er með þessi mál hér á landi, er hægt að fá lista birtan á netinu. Allavega af kurteisi við þann hóp, hvers íbúðir voru veðsettar, að þeim forspurðum til að fjármagna upphaf innrásar. Eða útflutnings verðbólgu til að losa um þenslu sem óx samfara  byltingu á eignarhlutföllum og tekjuskiptingu í þjóðfélaginu. Fækkað jöfnum tækifærum einstaklinganna í heilbrigðri samkeppni í dvergefnahagsríki.


mbl.is Bankar leysi frá skjóðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira atvinnuleysi, lægri laun, ónýtt velferða kerfi, hærri glæpatíðni

Freipass für alle? – NEIN zur Personenfreizügigkeit!
Die SVP hat heute in Bern ihre Argumente sowie die Abstimmungskampagne gegen die Personenfreizügigkeitsvorlage vom 8. Februar 2009 vorgestellt. Das Freizügigkeitspäckli ist ein Freipass für alle und alles. Die Konsequenzen für die Schweiz wären weit reichend: Mehr Arbeitslose, tiefere Löhne, ruinierte Sozialwerke, mehr Kriminalität. Zudem wird die direkte Demokratie unterwandert und weiteren Erpressungen der EU und des Bundesrates Tür und Tor geöffnet

Fyrir þá sem eru að æfa sig í þýsku:

Schweizerische Volkspartei SVP

Meira atvinnuleysi, lægri laun, ónýtt velferða kerfi, hærri glæpatíðni


Neyðin kennir naktri konu að spinna

Verðfall á mörkuðum ESB er fyrirsjáanlegt sér í lagi látekjuhlutanum. Nú eru Íslendingar í vondum málum. Áherslur á innlimun í ESB síðust áratugina.

ESS og regluverkið sem réttlætti:

  1. einkavæðingu ríkisbanka og Auðlinda, ásamt samþjöppun fyrirtækja: samþjöppun valds á fárra hendur eða merkir einokun eða fákeppni : eitur á alla heilbrigða samkeppni sem byggir á fjölda en ekki stærð, var sagt hagræðing.   [Til að fjármagna uppbyggingu alþjóðafjármála stórveldis og skattaparísar erlenda fjárfesta; Reykjavík átti að jafnast á við New York]
  2. óheft flæði fjármagns og lálaunafólks áttu líka að skipta öllu máli. [til að útrýma tækifærum Íslendinga til að efnast almennt]

Hvað þar að gera?

  1. Breyta áherslum í sölumálum sjárvarfangs til að styrkja undir stoðir sjávarþorpa.
  2. Efla smábátútgerð til að styrkja undir stoðir sjávarþorpa.

Nú í dag gengur allt út að selja afurðir inn á látekjumarkaði ESB  í miklu magni til dreifingar í lágvörukeðjur.  Í stað þess að leggja á gæðaframleiðslu fullunninna sjávarafurða heima í héraði til útflutnings á fjölmarga hátekjumarkaði í stórborgum alls heimsins frá Lagos til Peking og New York til dæmis. [Alveg eins og við höfum kynnst hér í skjóli ESB eru erlendis tvær þjóðir: ein sem veit ekki aura sinna tal sem er því stærri hátekjumarkaður því sem heildar íbúafjölda þjóðarinnar er meiri.]  Það sem einkennir hátekjumarkaði er að tollar eru ekki eins mikil hindrun þar sem allt gengur út á geta veitt sér það best hverju sinni og kreppur hafa ekki áhrif á kaupmátt á þessum mörkuðum. Líka er auðveldra að komast með ívilnanir frá tollum þegar lítið magn raskar ekki stöðugleika viðkomandi þjóðar. Sérhvert þorp gæti haft sín sérsvið og LOGO og selt sínar afurðir í gegnum netið, flugsamgöngur er góðar, nóg er af viðskiptamenntuðum Íslendingum og ensku kunnátta almennt góð um allan heim.  Aðalatriðið að hafa sem flesta kaupendur til að minnka áhættu og halda sem mestum virðisauka heima í héraði til að styrkja  velferða kerfi þess. Smábát útgerð með handfærum og línu er búbót sem eykur fjölbreytni og styrkir ferskfisk útflutning inn á t.d. 5 stjörnu veitinga hús og Hótel.  

Meiri gæði, meiri fjölbreytni, fleiri söluaðilar, fleiri kaupendur, fleiri hátekjumarkaðir það er að hámarka arðinn [virðisaukann sem verður eftir heima í héraði].  Tólin og tækin eru mannauður til orðs og æðis: almenn hálaun [næsta þjóðarsátt], sterkur gjaldmiðill: Dollar, enskukunnátta, og netið. 

En fremur vil ég sjá að fiskur, kjöt, grænmeti og annar iðnaður sé ódýrastur heima í héraði. Það er framleiðendur og heildsalar hafi verðlista upp á borðum. Öll sala af þeirra hálfu sé gegn staðgreiðslu. Séu þeir með smásölu afhendingu samhliða þá gildi það sama um verð og og greiðslu. [Sumt dýrara sumstaðar er jafnræði í ljósi heildardæmisins].

Kaupandi greiði alltaf flutnings kostað og fjármagnskostnað og ber ábyrgð á sinni rýrnun og uppsetningu vara í sinni verslun eða heimili. Einfaldar samkeppni eftirlit því kaupandi myndar sinn afslátt sjálfur  eins og hagsýn húsmóðir. Bankinn getur þá orðið besti eftirlitsaðilinn til að halda vörð um heilbrigða samkeppni.

Einkaframtakið þar sem eigandi er virkur á staðnum er besta formið því engin passar betur upp á eign sína en eigandinn sjálfur. Fleiri sjálfstæðar smá einingar virkari og heilbrigðari samkeppni.'

 

Kostir dvergefnahagsríkis eða lítillar þjóðar með gífurlegar auðlindir. Hún getur stjórnað flæði fólks og fjármagns. Hún getur haldið upp almennum hátekju launum. Kostir að selja á marga hátekjumarkaði að selja litið magn vítt og dreift um um heiminn eru ennfremur að hægt er að stjórna framboði og eftirspurn með því að fækka eða fjölga mörkuðum hratt eftir þörfum: þar sem mannauður er til staðar að hámarka arðinn. 

Valið er okkar,  Við látum ekki velja fyrir okkur.      Búin að fá nóg af því. Úlfurinn étur sauðina. Við erum ekki heimsk. 


mbl.is Þorskkvóti aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkistjórnin er ekki þjóðin?

Gera þarf nýjan sáttmála við þjóðina

Skúli telur að ríkisstjórnin þurfi að gera nýjan sáttmála við þjóðina.  Enginn vafi sé á því að hún hefur stjórnskipulega fullt leyfi til þess að sitja áfram út kjörtímabilið. Hins vegar hafi trúnaðurinn við þjóðina beðið hnekki og það útheimti verulegt átak að endurvinna traust þjóðarinnar.

Vægt til orða tekið. Úlfur, Úlfur.  Miðað við hvaða aðgang lykilaðilar hafa að kerfinu og í ljósi stærðar vandmálsins sem þeir hafa varpað á þjóðina og áframhaldandi leynd um aðgerðir og aðgerðarleysi, hlýtur þjóðin að gera kröfu um nýja þjóna til að fara með umboð sitt í framtíðar lýðræðis þjóðfélagi.    Það er engar líkur að stjórnhættir og siðferði breytist með vanhæfum einstaklingum. Þjóðin á enga von ef ekki finnast hæfari einstaklingar til að halda um stjórnvöllinn. Þjóðin er búin að dæma menn eftir verkum sínum. Er stjórnin búin að viðurkenna að draumar um Ísland sem alþjóða fjármámiðstöð hafi verið vitfirring, er hún búin að viðurkenna að við fjármögnum ekki velferðarkerfið með að vera að brask með veikast gjaldmiðil heimsins. Því er ekki búið að draga úr umsvifum Seðlabanka, leggja niður Kauphöll með hennar fylgifiskum, breyta áherslum í Háskólanum  í Reykjavík og Bifröst.

 Millifæra fjármuni sem sparast við að skera niður fjármálageira ofurvitfirringatímabilsins til að efla heilbrigði og iðnað.

En sérhver talar fyrir sig. Þjóðin þarf ekki að semja við ríkisstjórnina. Þjóðin segir henni fyrir verkum í lýðræðislegu þjóðfélagi. Ríkisstjórnin leitar umboð húsbænda sinna: þjóðarinnar til að framkvæma vilja hennar á sérhverjum tíma. Þjóðin lætur ekki segja sér fyrir verkum hún er að meðaltali of greind til þess.  

Hversvegna er ekki búið að taka hér upp stöðuleika lánsform sem gilda hjá öðrum siðmenntuðum þjóðum. Svo sem að taka upp íbúðavísitölu til ákvörðunar heildavaxta skuldabréfa með verðtryggingu í fasteign heimilisins, aðrar ríkistjórnir bera ábyrgð á því að fasteigna verð haldist stöðugt.  2,35% raunvaxta krafa í þessum flokki bréfa er grundvöllur stöðugleika allra heimila erlendis.

Þetta eru hlutir ásamt því að taka upp Dollar sem þarf að gera strax. Þessi ríkisstjórn á sér ekki viðreisnarvon. En flokkarnir lifa af því 98% flokksmanna tryggir það. 


mbl.is Skúli Helgason: Krafa um breytingar á rétt á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB innlimun er málið

Fleiri Sjálfstæðismenn skynja stefnubreytingu hjá Sjálfstæðisflokki. það er að standa á eigin fótum og auka Valið.  

ESB lykt er farin að skaða VG að mínu mati.  Reynsla Íslendinga af Regluverki ESB síðustu ár og allri þeirri forsjárhyggju sem því hefur fylgt og auðhringa [fjárfesta] dýrkun sem gleymir einstaklingunum þjóðinni  með ofuráherslum á hjarðlífi er farin að tala.


mbl.is Ríkisstjórnin nýtur stuðnings 36% kjósenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Júlíus Björnsson

Höfundur

Júlíus Björnsson
Júlíus Björnsson

Áhugasamur um allt milli himins og jarðar. Síðan í upphafi hruns stundað sjálfsnám í EU lögum og rannsóknum á Íslensku hagstjórnargrunni: Auðlinda og fámenns efnisviðar hæfra einstaklinga.

Viðurkendir grunnar byggja á vandamálinu: framfærsla fólksfjölda í stórborgum  í vaxandi auðlindaskorti. Á þeim byggja allir alþjóðlegir Háskólar.

Nýjustu myndir

  • Hlutföll
  • Hlutföll03
  • Hlutföll02
  • Hlutföll01
  • Mortgage II
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 54890

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband